Nánari upplýsingar

LiDAR fókus, nú aðgengilegur öllum

Í fyrsta skipti kynnir DJI LiDAR fókuskerfi sem sjálfstæða vöru, sem gerir breiðum notendahópi kleift að njóta þess frelsis sem fylgir snjöllu fókuskerfi.

Nýtt grip, afar fjölhæft

Nýhannað DJI Focus Pro Grip er með 2 1/2 klst. aflgjafa, þægilegar skjáaðgerðir, sjálfvirka kvörðun og gagnageymslu fyrir 15 linsur, möguleika á að fjarstýra upptöku með Bluetooth og möguleika á upptöku í höndunum. Þannig veitir það framúrskarandi LiDAR fókusupplifun, jafnvel án Ronin-hristivarnar.

  • Stillingar á snertiskjá, samstilling á LiDAR-sýnGripið, með snertiskjá í fullum lit, styður stillingu á LiDAR- og mótorstillingum og getur sýnt rauntímasýn frá sjónarhorni LiDAR-kerfisins og þannig veitt myndatökufólki fullkomna meðvitund á meðan á notkun stendur.
  • Sjálfvirk kvörðun, skilvirk og þægilegDJI Ronin appið kemur með innbyggðum linsugögnum sem hægt er að flytja inn í Focus Pro Motor með Bluetooth-tengingu við gripið. Einn mótor getur geymt gögn fyrir allt að 15 linsur.
  • Bluetooth-tenging, þráðlaus fjarstýringGripið getur tengst beint við spegillausar myndavélar í gegnum Bluetooth til að hefja og stöðva upptöku þráðlaust. Einnig er hægt að tengja það við DJI Ronin appið í gegnum Bluetooth til að klára kvörðun á handvirkum linsum. [1]
  • 2 1/2 klst. endingartími, hægt að nota á meðan er hlaðiðGripið styður 2 1/2 klst. aflgjafa fyrir LiDAR og fókusmótorinn. Það gerir stanslausa notkun möguleika á meðan hleðsla er í gangi, með PD-hraðhleðslurafhlöðum frá þriðju aðilum.

Háþróað sjálfvirkt fókus, stórt skref áfram

Lengri og breiðari fókus
Fókuslengd fyrir mannleg viðfangsefni með LiDAR er allt að 20 metrar, [2] u.þ.b. þrefalt á við síðustu kynslóð, [3] og höndlar tökur með aðdráttarlinsum með glæsibrag.
Ofurbreitt 70° sjónsvið rúmar auðveldlega viðfangsefni á brúnunum og nærmyndir, sem eykur talsvert skapandi frelsi.

  • Allt að 20 m fjarlægð frá mennsku viðfangsefni
  • 70° ofurbreitt sjónsvið

Nákvæmari og stöðugri fókus

Nýtt LiDAR-kerfi hefur 76.800 punkta, sem er 77% aukning frá síðustu kynslóð [3] og skerpir á getu þess til að nema mennskt viðfangsefni og dregur einnig úr fókusveiði. Þar að auki læsist fókus örugglega á viðfangsefni jafnvel þó það sé á hreyfingu, þökk sé 30 Hz LiDAR-endurnýjunartíðni.

  • 76.800 LiDAR-punktar
  • 30 Hz LiDAR-endurnýjunartíðni

Snjallari fókus

  • Eftirfylgni viðfangsefnisMeð hjálp nýrra gervigreindarreiknirita er hægt að ná fram áreiðanlegri skynjun á fólki og farartækjum. Jafnvel þótt viðfangsefnið hverfi í smástund getur LiDAR-kerfið snögglega fest fókusinn aftur.
  • Skipting á viðfangsefniÍ aðstæðum með fleiri en eitt viðfangsefni getur fókus snögglega færst á milli þeirra.
  • Stillanlegur fókushraðiHraði á sjálfvirkum fókus er stillanlegur og eru 5 stillingar í boði. Lægri stillingar skila sér í mýkri fókus en hærri gera hraðari og næmari fókus mögulegan.
  • Afmarkað fókussvæðiTvær fókussvæðisstillingar, Wide og Flex Spot, eru í boði. Með Wide-stillingunni getur LiDAR-kerfið sjálfkrafa numið og fókuserað á fólk og farartæki. Með Flex Spot-stillingunni hafa notendur frelsi til að velja handvirkt hvaða viðfangsefni á að vera í fókus.

Sveigjanlegar samsetningar fyrir fjölbreyttar aðstæður

Focus Pro samanstendur af fjórum megineiningum: LiDAR, Motor, Grip og Hand Unit. Kvikmyndatökufólk getur sameinað þessa hluti á sveigjanlegan hátt byggt á þörfum hvers og eins.

Einstaklingar geta notað sjálfvirkan LiDAR-fókus til að auka skilvirkni í tökum og tryggja að niðurstöðurnar verði framúrskarandi. Teymi geta bætt dýpt við sjónrænar frásagnir með nákvæmri fókusstýringu með Hand Unit. Focus Pro rúmar fjölbreytt svið tökuaðstæðna og kvikmyndastefna.

AMF, samvinna fólks og véla

Með brautryðjandi AMF-stillingu í bæði Hand Unit og Grip setur DJI Focus Pro nýjan staðal hvað varðar samvinnu fólks og véla hvað varðar fókusstýringu og uppfyllir ýmsar fjölbreyttar skapandi þarfir.

Fókus sem þú finnur fyrir

Með AMF-stillingunni snýst fremri skífan á gripinu (eða fókusskífan á Hand Unit) á meðan sjálfvirki fókusinn verkar. Það gerir kvikmyndatökufólki kleift að fylgjast bæði með fókusnum á skjánum og sjá hvernig hann verkar í gegnum skynræna svörun, sem gerir skjótar ákvarðanir um hvenær skal skerast í leikinn mögulegar.

Skipting milli handvirks og sjálfvirks fókuss á millisekúndum

Fókusstýring er alltaf í þínum höndum. Með AMF-stillingu virka er hægt að virkja og afvirkja handvirka fókusstýringu á fáeinum millisekúndum. Það fangar ekki aðeins meiningu myndatökufólksins með nákvæmum hætti heldur bætir einnig skilvirkni á setti með því að fækka truflunum sem verða vegna skiptingar á fókusstillingu.

Kvikur fókus, það besta úr báðum heimum

Brautryðjandi AMF-eiginleikinn veitir ótakmarkaðan fjölda skapandi möguleika. Með AMF-stillingunni, LiDAR og mannlegum afskiptum verður til fókusupplifun sem er jafn fáguð og kvik og hún er skilvirk og þægileg. Um er að ræða samfellda upplfiun sem sameinar kraft og áreiðanleika tækninnar og innsæi og sköpun mannfólksins.

Snúið skífunni til að nota AMF fókusbreytingu, tilvalið fyrir frásagnarsenur.
Ýtið skífunni inn og haldið henni stöðugri til að nota AMF fókuslæsingu, tilvalið fyrir senur þar sem fyrirstöður eru í forgrunninum.

Fókusaðstoð með yfirlitsmynd

Með DJI Focus Pro LiDAR getur kvikmyndatökufólk öðlast dýpri skilning á staðsetningu viðfangsefnis og nýtt sér LiDAR Waveform fókusaðstoðina [4] með DJI High-Bright Remote Monitor til að fá yfirlitsmynd yfir senuna.

Þar að auki býður LiDAR Waveform upp á aukaupplýsingar á borð við staðsetningu viðfangsefnis, rauntímaviðmiðunarlínu fyrir brennisléttu, og fjarlægðarkvarða sem hjálpa til við að meta fókusstöðuna og sjá fyrir hvenær hið mannlega þarf að skerast í leikinn.

FIZ linsustýring

FIZ handeining með seguldempun

Stýrið á auðveldan hátt fókus, þysi og ljósopi linsunnar. Samvinna verður skilvirkari og auðveldara að taka upp flóknari senur.

  • Skrefalaus rauntímastilling dempunar
    Focus Pro Hand Unit er með rauntímastillingu á dempun án skrefa, sem veitir jafnvægi milli þæginda og nákvæmni.
  • Rafræn A-B punktamerkingarstilling
    Rafræn A-B punktamerkingarstilling veitir skynræna svörun vegna endapunkta, sem eykur nákvæmni og þægindi.
  • 160 m samskiptadrægni [5]
    Nær yfir meirihluta krafna fyrir tökur innandyra sem og utan.
  • Hefja/stöðva upptöku í gegnum Bluetooth
    Hægt er að nota Bluetooth til að tengjast beint við spegillausar myndavélar og hefja þannig og stöðva upptöku þráðlaust. [1]

FIZ mótor

Afköst mótorsins hafa verið stórbætt og býður hann upp á nákvæmari stjórn fyrir fagfólk, auk fjölbreyttari tjáningarmöguleikum.

  • Tenging með einum takka
    Tengist við Hand Unit með einum takka og losar þig undan handvirku tengingarferli, flýtir fyrir uppsetningu og notkun.
  • Aðeins 10 ms töf
    Mótorinn er u.þ.b. 30% hraðari en í síðustu kynslóð [6] og hefur aðeins 10 millisekúndna töf hvað varðar svartíma.
  • Þriggja-stiga stillanlegt snúningsátak
    Hægt er að stilla snúningsátak mótorsins til að passa við þéttleika fókushringja mismunandi linsa, sem tryggir mýkri upplifun.
  • Stillanleg snúningsátt
    Hægt er að stilla snúningsátt mótorsins á sveigjanlegan máta eftir mismunandi festingarstellingum.
  • Virkar með 15 mm stöfum
    Fjölbreyttari stærðarmöguleikar auðveldar festingu.

Segulmagnað dempunargrip

Ein tökumanneskja getur unnið starf heils tökuliðs. Einstaklingar geta auðveldlega og þægilega skipt á milli fókus- og þysstýringar og þannig stýrt myndavélinni á auðskiljanlegan og skilvirkan máta.

  • Fókusstýring
    Hægt er að stilla fókus auðveldlega með fremri skífu gripsins. Hægt er að stilla hraða skífunnar á milli 1 og 100 til að sérsníða snúningssviðið eftir þörfum.
  • Þysstýring
    Auðvelt er að skipta fremri skífunni yfir í þysstýringu, sem greiðir fyrir hraðri stýringu fókuslengdar linsunnar til að ná fram kvikari virkni.
  • Skynræn svörun seguldempunar
    Með fókusstillingu virka er hægt að stilla dempunarstuðulinn. Með þysstillingu virka skiptir skífan frá dempunarstillingu yfir í að koma til baka.

Hnökralaust samhæfi, hentar öllum aðstæðum

Aðstæður Lýsing á aðstæðum Vörusamsetning
Einstaklingsssköpun, tvöföld skilvirkni Þegar DJI RS 4 Pro er notað með DJI Focus Pro geta einstaklingar upplifað langdrægari, nákvæmari og snjallari sjálfvirkan LiDAR fókus og fengið nákvæma stjórn á kvikmyndalegri tjáningu við kvikar tökuaðstæður. [7] DJI RS 4 Pro
DJI Focus Pro LiDAR
DJI Focus Pro Motor
Fagmannlegar farartækjatökur, allt í einni ferð Með léttri farartækjatökulausn DJI PRO-línunnar getur kvikmyndatökufólk notið samtvinnaðrar hristivarnar, eftirlits og tveggja-rása stýringu rambalds og fókuss. Með notkun DJI Ronin 4D Hand Grips og DJI High-Bright Remote Monitor verða eiginleikar á borð við snöggt val á viðfangsefni, skipti milli sjálfvirks og handvirks fókuss með einum takka og LiDAR Waveform aðgengileg á sem einfaldastan hátt. [7] DJI RS 4 Pro
DJI Focus Pro LiDAR
DJI Focus Pro Motor
DJI Transmission (High-Bright Monitor Combo)
DJI Focus Pro LiDAR to DJI Transmission Cable Hub
DJI Ronin 4D Hand Grips Combo
DJI Ronin External GPS Module
Efld sköpun, snjöll ðastoð Þökk sé FIZ stýrigetu DJI Focus Pro Hand Unit og sjálfvirks fókuss DJI Focus Pro LiDAR getur tæknin haft frumkvæðið í flóknum aðstæðum, með AMF-stillingunni. Tæknin getur gripið inn í og tekið stjórnina á hnökralausan hátt með LiDAR og stillt af þys og ljósop eftir þörfum hverra aðstæðna. [7] DJI Focus Pro LiDAR
DJI Focus Pro Motor
DJI Focus Pro Hand Unit
DJI Transmission
Samvinna teymis, nákvæmur fókus DJI Focus Pro þarf aðeins tengingu við DJI Transmission til að viðhalda fagmannlegri fókusgetu og bjóða á sama tíma upp á ítarlega möguleika til að aðstoða við fókus, á borð við LiDAR Waveform fyrir hefðbundna fókusstilla. [7][8] DJI Focus Pro LiDAR

Sameiginleg linsustýring fyrir Ronin 4D Með stöðugri og áreiðanlegri merkjasendingu DJI Transmission geta margir einstaklingar í sameiningu stýrt DJI Ronin 4D. Lausnin gerir aðalstjórnandanum kleift að stýra samsetningu á sveigjanlegan hátt með Ronin 4D, á meðan fókusstjórnandinn notar DJI Focus Pro Hand Unit auk DJI High-Bright Remote Monitor til að sjá um fókusinn. [7] DJI Ronin 4D
DJI Focus Pro Hand Unit
DJI Ronin 4D Video Transmitter
DJI High-Bright Remote Monitor
Linsustýring úr ofurfjarlægð fyrir Inspire 3 Með hjálp DJI Transmission geta fókusstjórnendur fylgst með DJI High-Bright Remote Monitor og stillt af fókus úr fjarlægð, auk skrefalausrar stillingar ljósops, á DJI Inspire 3 með DJI Focus Pro Hand Unit. [7] DJI Inspire 3

Smáa letrið

  1. Nánari upplýsingar um samhæfi eru aðgengilegar á Camera & Lens Compatibility-síðunni á vef DJI.
  2. Krefst þess að 2x zoom display stillingin á DJI Focus Pro Grip skjánum sé virk.
  3. Samanborið við DJI LiDAR Range Finder (RS). Gögn voru mæld í stýrðu umhverfi. Raunveruleg upplifun fer eftir umhverfi, notkunartilfelli og fastbúnaðarútgáfu.
  4. Krefst DJI Focus Pro LiDAR to DJI Transmission Cable Hub auk DJI Transmission (High-Bright Monitor Combo).
  5. Mælt samkvæmt reglum FCC í opnu hindranalausu umhverfi án truflana. Gögn eru aðeins til viðmiðunar. Raunveruleg sendingardrægni fer eftir umhverfi.
  6. Samanborið við DJI RS Focus Motor (2022). Hraði mótors getur farið eftir linsudempun. Miðið við raunverulega reynslu. Gögn voru mæld í stýrðu umhverfi. Raunveruleg upplifun fer eftir umhverfi, notkunartilfelli og fastbúnaðarútgáfu.
  7. Að setja upp tökulausnir krefst eins eða fleiri aukahlutar sem fylgir ekki.
  8. LiDAR Waveform-fókusaðstoð er aðeins í boði í aðstæðum þar sem aðeins einn skjár er notaður.

DJI Focus Pro Creator Combo

158.990 kr.

Creator Combo inniheldur DJI Focus Pro LiDAR, DJI Focus Pro Grip, DJI Focus Pro Motor og DJI Focus Pro Carrying Case.

DJI Focus Pro

Finndu fókusinn

AMF linsustýring

DJI Focus Pro, fyrsta sjálfstæða sjálfvirknivædda handvirka fókuskerfi (AMF) DJI veitir kvikmyndatökufólki harðgera og yfirgripsmikla fókuslausn og skapar nýtt tímabil samvinnu fólks og véla hvað varðar fókus.

  • LiDAR fókus, aðgengilegur öllum
  • AMF, samvinna fólks og véla
  • FIZ linsustýring
  • Samtvinnuð virkni, hentar öllum aðstæðum

Ekki til á lager

Viltu fá tilkynningu þegar þessi vara er aftur á lager?

Scroll to Top