Nánari upplýsingar

DJI Dock er sterkbyggð, áreiðanleg og gerð til að vinna 24/7, dag og nótt, í rigningu og sól.

Hver DJI Dock hýsir Matrice 30 og er honum lendingarpallur, hleðslustöð, flugtakspallur og stýribúnaður fyrir sendiferðir sem forritaðar eru í DJI FlightHub 2.

  • Fjölhæf og auðvelt að koma í notkun
  • Vinndu snjallar með sjálfvirknivæðingu
  • Skýjastjórnun í höndunum
  • 7 km notkunardrægni [1]
  • Hraðhleðsla lágmarkar viðlegutíma [2]
  • Notkunarhitastig: -35°C til 50°C
  • Open Edge Computing [3]

Ný sýn á fjarvinnu

Fullkomin skýjastjórnun

FlightHub 2 leysir úr læðingi fulla virkni DJI Dock í skýinu. Tímasettu flug, búðu til og breyttu flugleiðum og sjáðu um gögn sem safnað er.

Rauntímameðvitund Skipulagning leiðangra Stýring flugáætlana Margmiðlunarstjórnun og -geymsla Einn staður fyrir stjórnun og viðhald
Streymdu háskerpumyndmerki hvenær sem er til að fylgjast með DJI Dock eða drónanum þínum. Skipulegðu flóknar flugleiðir úr fjarlægð með FlightHub 2. Breyttu, stýrðu og hladdu upp flugleiðum í DJI Dock og fylgstu með framvindu og niðurstöðum flugsins. Farðu yfir staðsetningarmerktar myndir, myndbönd, kort og víðmyndir sem drónarnir þínir safna. Hægt er að hlaða gögnum frá drónunum sjálfkrafa upp og geyma fyrir síðari notkun. Fylgstu með heilsu og stöðu DJI Dock og drónanna þinna úr fjarlægð í gegnum skýið.

Nánar um DJI FlightHub 2

Hraðhleðsla, stuttur viðlegutími

TEC loftkæling gerir hraðhleðslu og hratt flugtak mögulegt með því að kæla rafhlöður drónanna. Þannig er hægt að hlaða þau úr 10% upp í 90% á aðeins 25 mínútum [2].

Öflug atvinnulausn

Dag sem nótt, í rigningu sem í sólskini

DJI Dock er byggð til að þola veður og vinda svo þú þurfir þess ekki.

  • IP55-vörn
  • Notkunarhitastig: -35°C til 50°C [4]
  • 40 kA yfirspennuvörn [5]
  • 5 klst. vararafhlaða [6]
  • Virk hitastýring gerir hraðhleðslu mögulega og bætir öryggi dróna
  • 6 mánaða viðhaldsmillibil [7]

Matrice 30 Series Dock Version

Viðstöðulaus virkni

M30 Series Dock Version veitir flaggskipsafköst, þolir allt að 12 m/s vind og er IP55 vottuð.

Þekur stór svæði

Fullhlaðinn getur M30 flogið í allt að 40 mínútur [8] og getur framkvæmt leiðangra og skoðanir allt að 7 km í burtu frá DJI Dock.

Settu markið á réttu smáatriðin

M30 Series Dock Version inniheldur víð-, þys- og hitamyndavélar (aðeins M30T) með leysifjarlægðarmæli, sem saman geta fangað þau loftgögn sem þú þarft, þegar þú þarft þau.

Nánar um Matrice 30 línuna

Einföld uppsetning

Ein DJI Dock vegur innan við 105 kg og þarf innan við 1 m2 af plássi. Uppsetning krefst aðeins jarðfestingar, aðgengis að rafmagni og internettengingu og snöggrar stillingar með DJI RC Plus fjarstýringu.

Samofin hönnun

DJI Dock er pökkuð af samofnum vélbúnaði sem bætir virknina.

  • Víðlinsuöryggismyndavél
  • Innbyggð veðurstöð
  • Innbyggt fjölstefnuloftnet
  • RTK eining
  • Edge Computing þenslurauf

Einingaviðhald

Einingahönnun kjarnaíhluta einfaldar viðhald.

Auðveldlega uppfæranleg hönnun

Einkanot Edge Computing [3]
Skýjaforritaskil opna eiginleika DJI Dock fyrir forriturum og kerfisstjórum sem geta sett upp sérsniðinn einkaþjón. Lesa nánar DJI Docks kemur með þenslurauf fyrir edge computing sem veitir möguleika á forvinnslu margmiðlunarskráa og fleiru til að bæta skilvirkni.

DJI Dock Bundle

  • M30 Dock Version
  • M30T Dock Version

Smáa letrið

  1. Mælt í umhverfi án sendingar- eða merkistruflana og við innan við 4 m/s vindhraða. Flughraði drónans var 15 m/s og var 20% hleðsla tekin frá sem öryggishleðsla fyrir lendingu.
  2. Mælt við 25°C hita. Eftir því sem hitastig hækkar lengist kælingartími rafhlaðna og lengir þannig viðlegutíma.
  3. Stutt frá þriðja ársfjórðungi 2023.
  4. Til að tryggja öryggi við notkun fer DJI Dock í biðstöðu þegar hitastig fer niður fyrir -20°C og heldur áfram flugleiðöngrum þegar hitastigið fer aftur upp fyrir -20°C.
  5. AC yfirspennuvörnin er allt að 40 kA (8/20 μs bylgjuform) og uppfyllir EN/IEC 61643-11 TYPE 2 varnarstaðalinn. RJ45 yfirspennuvörnin er allt að 1,5 kA (8/20 μs waveform) sem uppfyllir CATEGORY C varnarstig EN/IEC 61643-21 staðalsins. Geta yfirspennuvarnar er háð rýmd og áreiðanleika jarðtengingar. Til að lágmarka líkur á yfirspennu skal ganga úr skugga um að jarðtenging sé sett upp rétt við uppsetningu.
  6. DJI Dock inniheldur innbyggða vararafhlöðu sem getur veitt orku í allt að 5 klst. og tryggt að dróninn geti komist heim og lent örugglega ef rafmagnsleysi verður.
  7. Mælt í vindlausu, sandlausu og tæringarlausu tilraunastofuumhverfi við eðlilegt hitastig. Mælt er með því að viðhald sé framkvæmt á sex mánaða fresti eða oftar, eftir því hvernig umhverfisskilyrði og tíðni notkunar DJI Dock eru.
  8. Mælt í vindlausu umhverfi þar sem dróninn flýgur á stöðugum 10 m/s hraða. Raunveruleg fluglengd er háð umhverfisþáttum, flugstillingu og aukahlutum.

DJI Dock

DJI Dock

Fyrir ótroðnar slóðir

Scroll to Top