DJI Reykjavík · Verkstæði
★ Keyptir þú tækið hjá DJI Reykjavík?

Frí tæknileg aðstoð — ekkert þjónustugjald

Hafir þú keypt tækið hjá okkur er tæknileg aðstoð frí, ekkert þjónustugjald bætist við og þú greiðir aðeins sjálfan viðgerðarkostnað tækisins. Verðskráin hér að neðan á eingöngu við um tæki sem keypt voru annars staðar.

Verkstæði

Verðskrá verkstæðis

Verðskráin hér að neðan á við um DJI tæki sem keypt voru annars staðar en hjá okkur. Sjálfur viðgerðarkostnaður er metinn af DJI og þú færð alltaf staðfest verð áður en viðgerð hefst.

Gildir frá 12.06.2026

Almenn þjónusta

Tæknileg aðstoð í móttökuAllt að 15 mínútur · frí fyrir tæki keypt hjá okkur3.900 kr.
ÞjónustugjaldAðeins fyrir tæki keypt annars staðar7.900 kr.
FlýtiþjónustaFer eftir stærð tækis · bætist ofan á þjónustugjald9.900 – 29.900 kr.

Verð eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur og breytingar. Öll verð eru með VSK.

Hvað felst í þjónustunni?

Tæknileg aðstoð í móttöku 3.900 kr.

Stutt tæknileg ráðgjöf í móttöku, allt að 15 mínútur í senn. Hentar vel fyrir uppsetningu, uppfærslur, stillingar og almenna ráðgjöf sem ekki krefst innlagnar á verkstæði. Viðskiptavinum sem keyptu tæki sitt hjá DJI Reykjavík stendur þessi þjónusta til boða án endurgjalds.

Þjónustugjald 7.900 kr.

Þjónustugjald leggst ofan á viðgerðarkostnað og á eingöngu við um tæki sem keypt voru annars staðar en hjá okkur. Gjaldið nær yfir alla umsýslu viðgerðarinnar — meðhöndlun og skráningu tækisins, sendingarkostnað til og frá DJI og önnur tilfallandi gjöld tengd sendingunni.

Flýtiþjónusta 9.900 – 29.900 kr.

Með flýtiþjónustu er tækið sent eitt og sér til DJI strax daginn eftir móttöku, í stað þess að bíða eftir samsendingu með öðrum tækjum. Verðið ræðst af stærð og gerð tækis og bætist ofan á venjulegt þjónustugjald. Tilvalið þegar tími skiptir máli.

Viðgerðarkostnaður tækis Frá ~15.500 kr.

Sjálfur viðgerðarkostnaðurinn ræðst af verðmati DJI. Tækið er sent til DJI sem metur bilunina, og við höfum samband með staðfest verð áður en nokkur viðgerð hefst. Kostnaður byrjar að jafnaði í kringum 15.500 kr. (byrjunargjald og vinna á verkstæði) og ræðst að öðru leyti af því hvaða varahluti þarf að endurnýja.

Þjónusta

Viðgerðarferli & upplýsingar

Svona gengur viðgerð fyrir sig – frá því tæki er lagt inn þar til það er komið aftur til þín.

Ferli viðgerðar

  1. Móttaka og skráningTækið er tekið inn og skráð hjá okkur.
  2. Söfnun í sendinguBeðið er eftir að safnist í sendingu svo hægt sé að senda nokkur tæki saman. Ef greitt er fyrir flýtiþjónustu sleppur þetta skref.
  3. Sent til DJITækið er sent til DJI í Hollandi.
  4. Verðtilboð og samþykkiDJI metur viðgerðina og sendir verðtilboð. Við hringjum í þig til að staðfesta heildarkostnað (viðgerð + þjónustugjald) og fá samþykki fyrir viðgerð.
  5. Viðgerð hefstViðgerðin er framkvæmd hjá DJI.
  6. Tækið komið til bakaVið hringjum í þig þegar tækið er komið aftur og tilbúið til afhendingar.

Afhendingartími

Afhendingartími er að jafnaði 2–3 vikur samtals. Sé flýtiþjónusta keypt fer tækið eitt og sér út til DJI í Hollandi daginn eftir að það er móttekið. Sé tækið móttekið á föstudegi fer það út næsta virka dag.

Gagnaábyrgð

Mikilvægt

Engin ábyrgð er tekin á gögnum þeirra tækja sem skráð eru inn á verkstæði. Við mælum eindregið með því að taka öryggisafrit af öllum gögnum áður en tæki er lagt inn til viðgerðar.