Hannað til að koma í veg fyrir skaða og hrinda frá sér fingraförum
Ofurlétt en öflug og hefur engin áhrif á jafnvægi eða afköst dróna
Kemur í veg fyrir speglun án þess að breyta litum
MAVIC AIR 2 UV Filter (Professional)
Þessi sía hefur harða húð sem ver linsuna og myndflögurnar með því að koma í veg fyrir að útfjólubláir geislar komist inn í myndavélina. Enn fremur stoppar hún blátt ljós og kemur þannig í veg fyrir að myndir verði blá- eða hvítleitar á stórum opnum svæðum svo sem úti á hafi eða á stóru túni.
MAVIC AIR 2 ND Filter (Professional)
Myndir: Kemur í veg fyrir yfirlýsingu og dýpkar liti, afar gagnlegt þegar myndir eru teknar af mistri eða ljósi á hreyfingu að kvöldi til. Myndbönd: Dregur úr lokahraða svo hægt sé að taka mjúk, kvikmyndaleg myndbönd úr lofti.
MAVIC AIR 2 CPL Filter (Professional)
CPL-sían dregur úr glampa á spegilflötum svo sem vatni, snjó eða jafnvel gluggum. Hún eykur litadýpt og gefur skýrari mynd. Hægt er að breyta virkni skautunarsíunnar með því að snúa henni.
MAVIC AIR 2 ND-PL Filter (Professional)
Hybrid ND-PL-sían kemur í veg fyrir speglun. Hún dýpkar liti og bætir skerpu og framkallar þannig líflegri myndir. Hún minnkar lokahraða og kemur í veg fyrir yfirlýsingu. Hægt er að breyta virkni skautunarsíunnar með því að snúa henni.
Ofurléttar en öflugar, án þess að hafa áhrif á afköst dróna
CNC Aviation álrammi gerir síurnar ofurléttar en þó afar öflugar. Síurnar eru varðar gegn tæringu og eru hannaðar til að hafa engin áhrif á jafnvægi drónans þíns.
Þýskt SCHOTT-gler
Síurnar nota þýskt SCHOTT-gler sem efnisgrunn. Glerið hefur verið margpússað til að minnka ljósbrotsvísitölu þess, svo myndir verði sem nákvæmastar.
Tvíhliða vatns-, olíu- og rispuvarin húðun
Tvískipt, lagskipt húðun á síunum hrindir frá sér vatni og olíu, sem auðveldar þrif. Hörð húðin kemur þar að auki í veg fyrir rispur.
Dregur úr speglun án þess að breyta litum
Gler síanna er húðað til að koma í veg fyrir speglun en heldur þó litanákvæmni og -jafnvægi í lagi.