96.990 kr. – 119.990 kr.
Grípandi frásagnir
DJI RS 4 er létt hristivörn sem styður næstu kynslóðar lóðrétta upptöku með bættri skilvirkni, bættri hristivörn og fleiri aukahlutamöguleikum. Einstaklingar fá þannig fagmannlegri og skilvirkari skapandi upplifun og verkfærakistuna til að skapa grípandi sjónrænar frásagnir.
119.990 kr.
Inniheldur viðbótar professional aukabúnað eins og DJI Focus Pro mótor og burðartösku. Hann býður upp á mýkri og skilvirkari stjórn á linsu fyrir solo kvikmyndagerðarmenn, sem gerir þeim kleift að ná breiðara úrvali af kvikmyndatjáningu með auðveldum hætti.
96.990 kr.
Ekki til á lager
22.990 kr.
Ekki til á lager
DJI R Twist Grip Dual Handle hefur NATO-tengi sem gera þér kleift að hald aá DJI RS 2/DJI RSC 2 á ýmsa vegu, til dæmis í báðum höndum eða í skjalatöskustillingu.Virkar með: DJI RS 2, DJI RSC 2
Nánar10.990 kr.
Ekki til á lager
Léttara og smærra með handfangi. Hægt að lengja og stilla halla til að festa auðveldlega við NATO-tengið. Innbyggt cold shoe og 1/4"-20 festing.
Nánar6.990 kr.
Festir snjallsíma fyrir eftirlit, ActiveTrack 3.0 eða Force Mobile.Virkar með: DJI RS 2, DJI RSC 2
NánarDJI RS 4 kemur með nýhannaða lárétta plötu sem gerir aðra kynslóð hreinnar lóðréttrar upptöku mögulega, hraðari og auðveldari í notkun en nokkru sinni fyrr. Án allra aukahluta er hægt að losa láréttu plötuna og festa hana í lóðrétta stillingu og þannig tekið upp lóðrétt. [2]
Sjálfvirk læsing á öxlum auðveldar þér að byrja að taka upp eða geyma RS 4 á fljótan hátt. Læsingin bætir þannig upptöku, tilfærslu og geymslu. Einnig eru smærri bil á milli lásanna þegar þeir eru læstir og dregur það enn fremur úr hristingi.
DJI RS 4 er með Teflon™-húð á öllum þremur öxlum sem kemur í veg fyrir núning og auðveldar jafnvægi.
Þegar skipt er um myndavél eða linsur er getur fínstillingarskífan á hallaöxulnum fært myndavélina fram eða aftur og náð fram nákvæmri jafnvægisstillingu, upp á millimetra.
Efri plata hefur stillanlegt staðsetningarviðmið sem tryggir að myndavélin sé fest tryggilega.
OLED snertiskjárinn kemur með nýjum sjálfvirkum læsingareiginleika. Þegar skjárinn er læstur sýnir hann núverandi stillingu rambalds og stýripinna, með lágu birtustigi. Þetta kemur ekki einungis í veg fyrir að óviljandi snertingar eigi við stillingar heldur sparar einnig hleðsluna.
DJI RS 4 er létt og tekur allt að 3 kg farm. Það getur því haldið á meginstraums-spegillausum myndavélum með ýmsum linsum, og veitir þægilegt hald.
Samaborið við fyrri kynslóð hefur RS 4 8,5 mm lengri hallaöxul. Með því er hægt að festa meginstraum-spegillausar myndavélar með ýmsum linsum, auk aukahluta á borð við ND-síur, og breikkar þannig svið skapandi möguleika.
DJI hefur bestað næstu kynslóðar RS-hristivarnarreikniritið fyrir mismunandi aðstæður. Það nær fram framúrskarandi jafnvægi milli styrk hristivarnar og tilfinningu fyrir myndavélarhreyfingum og skilar sér bæði í framúrskarandi hristivörn og betri notandaupplifun. Þar að auki býður RS 4 upp á stórbættan stöðugleika í lóðréttri upptöku sem hentar vel í kvik skot svo sem hlaup eða lágt sjónarhorn.
DJI RS 4 styður DJI PRO fagvörurnar og skilar sér í framúrskarandi frammistöðu sem auðveldar sköpun.
DJI RS 4 getur fjarstýrt lokara og þysi myndavélarinnar með Dual-Mode Bluetooth-tækni. Í þysstillingu er hægt að nota stýripinna til að stilla Power Zoom (fyrir PZ linsur) og Clear Image Zoom [3]. Aðeins þarf að para myndavél einu sinni og eftir það getur hún tengst og aftengst sjálfkrafa.
Með hinum nýja DJI Focus Pro Motor [4] gerir DJI RS 4 þér kleift að stýra fókusnum með skífu eða stýra þysi með stýripinna, sem skilar sér í skilvirkri stýringu á linsunni.
Hægt er að sérsníða virkni takka og setja á FPV-stillingu, sem gerir að verkum að það að ýta honum inn og halda honum inni lætur öxlana þrjá fylgja áttinni sem gripið færist í. Þetta er gagnlegt þegar tekið er upp myndefni sem snýst eða verið er að líkja eftir fyrstu persónu myndefni.
Með því að nota rambaldsstillingarrofann getur þú auðveldlega skipt á milli PF-, PTF- og FPV-stillinga. Einnig er hægt að stilla FPV-stillinguna á 3D Roll 360 eða sérsniðna stillingu í samræmi við þarfir hverju sinni.
DJI RS 4 kemur með RSA samskiptatengi sem gerir því kleift að tengjast við aukahluti á borð við DJI RS Tethered Control Handle [6] og aukahluti frá þriðju aðilum á borð við stýrihandföng [6] og hringhandfangafjarstýringar. [6] Hægt er að skipta auðveldlega á milli mismunandi uppsetninga eftir því hvaða þarfir eiga við hverju sinni.
Þökk sé DJI RS SDK geta framleiðendur og einstaklingar þróað sérsniðna virkni fyrir RS 4 og þannig uppfyllti enn fjölbreyttari þarfir.
DJI RS SDK er eins og er aðeins í boði á ensku og kínversku. Hafir þú spurningar eða beiðnir má finna frekari upplýsingar á spjallborði DJI (DJI Forum).
Nýtt BG70 High-Capacity Battery Grip [6] getur lengt endingartíma RS 4 í allt að 29,5 klst. [7] Það getur einnig veitt myndavélinni og aukahlutum orku, allt að 18 W, með USB-C tengi.
Hámarksrafhlöðuending | PD hraðhleðsla | Full hleðsla (hröð) [8] | Hámarksafl (úttak) |
---|---|---|---|
29,5 klst. | 45 W | 2,5 klst. | 18 W |
Bæði sjálfstætt kvikmyndatökufólk og smærri tökulið geta nýtt sér Ronin Image Transmitter [6] til að fá beina útsendingu í háskerpu og fjarstýringu á rambaldi og myndavél, auk ActiveTrack 4.0, Force Mobile og fleira.
Aukahlutir fyrir DJI RS línuna [6] á borð við RS BG30 Battery Grip, RS Focus Motor (2022) og Ronin Image Transmitter virka allir með RS 4.
DJI RS BG30 Battery Grip | DJI RS Focus Motor (2022) | DJI RS Tethered Control Handle | DJI RS Twist Grip Dual Handle | DJI Ronin Image Transmitter |
---|---|---|---|---|
Allt að 12 klst. rafhlöðuending með RS 4. [7] Styður PD og QC 2.0 hraðhleðslustaðla. Með 24 W hleðslu er hægt að hlaða rafhlöðuna í u.þ.b. 80% á 1 klst. og fullhlaða hana á 1 1/2 klst. og er hægt að hlaða það óháð rambaldinu. | Með allt að 1 N·m snúningsátaki veitir fókusmótorinn mjúka fókusupplifun. Hægt er að setja mótorinn á og losa hann af á fljótan og öruggan hátt án tóla. | Þegar tvö handföng eru notuð (með Twist Grip Dual Handle) styður handfangið aðgerðir svo sem að virkja svefnstillingu, upptöku og fókus. Er með NATO-tengi og cold shoe-skrúfgang og er þannig hægt að festa við skjá og bæta við fókushjóli á hliðinni. | Handfangið er með NATO-tengi og er fljótlegt að losa. Gerir mögulegar skjótar umbreytingar milli mismunandi samsetninga. Virkar með aukahlutum með tilsvarandi tengjum. | Styður beinar útsendingar í háskerpu og fjarstýringu á rambaldi og myndavél, auk ActiveTrack 4.0, Force Mobile og fleiri eiginleika. Heildræn vöktunar- og stýrilausn fyrir einstaklinga og lítil tökulið. |
96.990 kr. – 119.990 kr.
Við látum þig vita þegar varan er komin aftur á lager
* DJI Ronin appið er nauðsynlegt til að virkja vöruna þegar DJI RS 4 er notað í fyrsta skipti.