DJI Osmo Mobile 8

26.990 kr.

Leystu sköpunarkraftinn úr læðingi. Osmo Mobile 8 er fært um allt að 360° láréttan snúning og áreynslulausar lágar tökur. Með beinni tengingu við síma [1] geturðu nýtt eftirfylgdareiginleika sem heldur fólkinu þínu alltaf í rammanum. Multifunctional Module sameinar eftirfylgd fólks og gæludýra [2], lýsingu og hljóðupptöku [3] og tryggir að viðfangsefnið þitt haldist í fókus hvort sem þú ert í myndsímtali, að skapa efni eða að taka upp þitt daglega líf. Láttu ekkert augnablik frá þér fara!

  • Innbyggð eftirfylgd, hljóð- [3] og lýsingarmöguleikar [2]
  • 360° láréttur snúningur
  • Bein tenging við síma fyrir áreynslulausa eftirfylgd [1]
  • Einstaklega þægilegt grip fyrir lágar tökur
  • Innbyggð framlengingarstöng og þrífótur
  • 10 klst. rafhlöðuending [4] og símahleðsla
  • Öflug 3-ása hristivörn
  • Einfaldar leiðbeiningar og klipping með einum smelli

Veldu útfærslu

  • Variation Image
    DJI Osmo Mobile 8

    26.990 kr.

Leystu sköpunarkraftinn úr læðingi

Beint streymi úr síma

Osmo Mobile 8 býður upp á snjalla eftirfylgd, hágæða hljóðupptöku [3] og stillanlega lýsingu [2] og breytir hvaða rými sem er í þitt eigið stúdíó. Farðu í beina útsendingu með fullkomnu sjálfsöryggi og sýndu heiminum hæfileika þína.

Festu lífið á filmu

Innbyggða framlengingarstöngin og þrífóturinn, ásamt fólks- og gærudýlaeftirfylgd [2], gera þér kleift að taka upp fallegar stundir hvort sem þú ert eitt eða í hópi. Varðveittu góðu stundir lífsins án vandræða.

Atvinnuframleiðsla

Taktu upp stöðugt myndefni frá mörgum sjónarhornum með 360° láréttum snúningi og 3-ása hristivörn. Osmo Mobile 8 fylgir einnig viðfangsefnum sjálfkrafa eftir og uppfyllir þannig fjölbreyttar þarfir atvinnukvikmyndatöku.

Eftirfylgdarráð undir rifi hverju

DJI OM Multifunctional Module

Multifunctional Module gerir nákvæma eftirfylgd fólks, katta og hunda [2] mögulega. Festu eininguna við rambaldið til að fanga hjartnæmar stundir með gæludýrunum þínum, hvort sem er með myndavélinni eða útsendingaröppum. Öflug eftirfylgd einingarinnar skarar fram úr þegar um marga einstaklinga er að ræða, hvort sem þú ert er á sýningu eða í almenningsgarði.

Bein tenging við síma [1]

Styður Apple DockKit

Byrjaðu að taka upp um leið og innblásturinn kemur. Settu símann upp að NFC-svæðinu á handfangi rambaldsins til að para það í gegnum Bluetooth [1]. Þegar síminn hefur verið festur getur rambaldið byrjað að fylgja viðfangsefnum hnökralaust.

Segulmögnuð festing

iPhone-notendur geta einnig notað DJI OM Magnetic Quick-Release Mount og sleppt símaklemmunni, sem straumlínulagar sköpunarferlið enn meira.

ActiveTrack 7.0 [5]

Hannaðu rammann eins og þú vilt og læstu fókusnum á viðfangsefnið með auðveldum hætti. Sama hversu mikill aðdráttur er, hvaða skyndilegu hindranir birtast eða hvaða stórar hreyfingar verða þá fylgir Osmo Mobile 8 viðfangsefninu þínu alltaf eftir með nákvæmni. Hvort sem stjarnan dansar á sviði eða treður sér í gegnum mannþröng missir Osmo Mobile 8 aldrei af augnablikinu. Með einum smelli í appinu geturðu flutt fókusinn á milli margra einstaklinga. Dual Lens Boost-eiginleikinn [6] notar víðlinsuna og aðdráttarlinsuna saman. Jafnvel þótt viðfangsefnið hreyfist hratt eða skjótist rétt svo út úr ramma finnur hristivörnin það á snjallan hátt aftur og fylgir því eftir, sem tryggir samfellda upptöku.

DJI OM Multifunctional Module

DJI OM Multifunctional Module [2] býður upp á eftirfylgd fólks og gæludýra, móttöku hljóðs [3] og fyllilýsingu, sem hjálpa þér að skapa með auðveldum hætti.

Fyllilýsing

Fyllilýsing með átta mismunandi birtustig og átta litahitastillingar. Hægt er að breyta stillingunum auðveldlega með einum snúningi á hliðarhjólinu. Hvort sem þú ert að taka upp á rigningardegi eða streyma í beinni í lítilli birtu geturðu skapað fullkomið útlit og stemningu í hvert einasta skipti.

Hljóðmóttaka

Notist með DJI Mic 3/Mic Mini/Mic 2 sendi [7] fyrir gagntakandi og kristaltært hljóð í beinum útsendingum og vloggum [3].

Eftirfylgd dýra

Multifunctional Module heldur í við fjörugu gæludýrin þín [2] og festir hvert einasta krúttlega augnablik á filmu – allt frá tignarlegu stökki kattar til orkumikils spretts hunds.

Eftirfylgd fólks

Virkjaðu eftirfylgd fólks með því að ýta snögglega á tökutakkann eða með því að sýna myndavélinni lófann þinn. Rambaldið læsist samstundis á viðfangsefnið um leið og þú ert til!

Taktu upp með bendingum [8]

Lófabending„V“-bending„Tvöfalt L“-bending
Sýndu lófann þinn og eftirfylgdin virkjast eða afvirkjast samstundis. Sama hvernig rambaldið hreyfist þá fylgir það þér.Gerðu „V“-bendingu til að taka mynd áreynslulaust eða til að hefja og stöðva myndbandsupptöku. Það hefur aldrei verið einfaldara að fanga skemmtileg augnablik á filmu!Notaðu „tvöfalt L“-bendingu til að stilla innrömmun skotsins af. Sama hvernig þú hreyfir þig rammar myndavélin þig sjálfkrafa inn á réttan hátt, svo þú sért alltaf á fullkomnum stað.

Auðveld stýring, örugg sköpun

360° snúningur, silkimjúk eftirfylgd

Sveigjanlega rambald býður upp á fleiri möguleika. Snúningsás Osmo Mobile 8 styður ótakmarkaðan 360° láréttan snúning, sem gerir þér kleift að taka víðmyndir og -myndbönd frá hvaða sjónarhorni sem er. Með snjallri eftirfylgd getur rambaldið læst sig á viðfangsefni á hreyfingu og skilað fullkomnu, fagmannlegu myndefni.

Einstaklega þægilegt grip fyrir lágar tökur

Hallaðu snúningsásnum fram til að taka upp frá neðra sjónarhorni. Multifunctional Module gerir rambaldinu kleift að fylgja sjálfkrafa börnum, gæludýrum [2] og fleiru, svo þú getir auðveldlega fangað krúttleikann úr þeirra sjónarhæð.

Næg orka fyrir allt það helsta

Osmo Mobile 8 er gert til að endast og nær allt að 10 klukkustunda [4] notkunartíma. Þannig styður það við upptökur og skapandi verkefni þín, allan daginn.

Með USB-C tengi getur rambaldið einnig hlaðið símann þinn, sem er tilvalið fyrir lengri upptökur utandyra og beinar útsendingar.

Einfalt allsherjar sköpunartól

Innbyggð framlengingarstöng

Innbyggða framlengingarstöngin stækkar sjónsviðið þitt og gerir þér kleift að koma fleiri vinum eða gæludýrum eða meira landslagi fyrir í hverri einustu sjálfu. Þegar þú tekur upp vlogg verða myndböndin þín einnig innihaldsríkari og meira aðlaðandi sjónrænt, hvort sem þú tekur upp ofan frá eða úr lágri stöðu.

Innbyggður þrífótur

Rambaldið og þrífóturinn eru samofin, svo þú þarft ekki neina aukahluti. Felldu þrífótinn út til að halda rambaldinu stöðugu [9] og skapaðu sóló án vandræða. Einnig einfaldar þrífóturinn geymslu.

Segulfesting með hraðlosun

Segulsímaklemman auðveldar þér að festa símann á skjótan en öruggan hátt. Settu símann einfaldlega í klemmuna og færðu hann nálægt rambaldinu. Þá smellur hann sjálfkrafa á sinn stað, svo þú ert alltaf tilbúið að taka upp. Losaðu festinguna svo til að hætta upptöku.

Hliðarhjól

Hjólið vinstra megin á handfangi rambaldsins gerir þér kleift að stjórna aðdrætti eða fókus [1], auk þess að kveikja og slökkva á fylliljósinu og stýra birtustigi þess og litahitastigi. Tökur verða sveigjanlegar og auðskiljanlegar og ekkert mál að prófa mismunandi stillingar.

Farðu auðveldlega af stað með DJI Mimo

ActiveTrack 7.0 [5] leysir sköpunargleðina úr læðingi

Dual Lens Boost

Víðlinsa og aðdráttarlinsa vinna saman að því að fylgja viðfangsefni á hraðri hreyfingu eftir yfir stærra svæði [6]. Jafnvel þótt viðfangsefnið fari út fyrir rammann dregur Mimo-appið það sjálfkrafa aftur inn. Hvort sem um er að ræða hjólabretti eða körfubolta muntu alltaf fanga allan hasarinn á filmu.

Eftirfylgd viðfangsefnis

Sama hvernig þú hreyfir þig eða breytir um stefnu skynjar rambaldið hreyfingar þínar sjálfkrafa, fylgir þeim og heldur þér í brennidepli allan tímann. Taktu upp töfrandi, grípandi skot með auðveldum hætti.

Snjallupptaka

Rambaldið skynjar mörg viðfangsefni á snjallan hátt. Með einni snertingu geturðu læst það á viðfangsefni og byrjað að fylgja því eftir. Skiptu áreynslulaust á milli mismunandi viðfangsefna með því að ýta á skynjunarramma þeirra. Það segir sig sjálft og bregst við samstundis.

Snjallir eiginleikar, betri sýn

TimelapsePanoramaDynamicZoomKlipping með einum smelliShotGuides
Osmo Mobile 8 styður Timelapse, Motionlapse og Hyperlapse og býður upp á einföld innbyggð Motionlapse-sniðmát sem setja hápunktana þína saman í töfrandi myndskeið.Prófaðu þrjár víðmyndastillingar: 3×3, 240° og CloneMe eru í boði, eftir því hver þín skapandi sýn er. Fangaðu víðáttumikið landslag og sýndu takmarkaleysi ímyndunarafls þíns.Notaðu Move In og Move Out stillingarnar til að fá teygju- og þjöppunaráhrif til að skapa kraftmikil stórmyndaskot með símanum þínum.Notaðu Osmo Mobile 8 með DJI Mimo-appinu og njóttu góðs af gervigreindarstýrðri klippingu í einum smelli, auk úrvals af sérstökum myndskeiðasniðmátum. Osmo Mobile 8 býður upp á heildarlausn allt frá upptöku til vinnslu, sem hentar sannarlega nýjum sköpurum.ShotGuides greinir sjálfkrafa aðstæður og mælir með skotaröð, ásamt kennsluefni um hvernig á að ná henni. Veldu úr ýmsum sniðmátum, fylgdu leiðbeiningunum og taktu upp eins og fagmanneskja á skömmum tíma.

Öflug 3-ása hristivörn

Osmo Mobile 8 notar sjöundu kynslóðar hristivarnartækni DJI fyrir aukinn stöðugleika án þess að skerða myndgæði. Rambaldið gerir þér einnig kleift að skipta mjúklega á milli upptöku úr lágri og hárri stöðu, sem auðveldar þér að hreyfa myndavélina upp, niður og í hringi og að snúa henni. Fangaðu hverful augnablik með stöðugleika og nákvæmni og varðveittu hverja minningu um leið.

PTFFPVPFSpinShot
Í PTF-stillingu fylgir myndavélin snúnings- og hallahreyfingum rambaldsins og helst stöðug í veltum. Þessi stilling er frábær fyrir tökur upp á við, niður á við og á ská.Í FPV-stillingu fylgja allir þrír ásar rambaldsins hreyfingu aðalhlutans. Þessi stilling er tilvalin fyrir kvikar tökur af kyrrstæðum viðfangsefnum eins og kennileitum, byggingum eða styttum.Myndavélin fylgir aðeins snúningshreyfingum rambaldsins og helst stöðug í beygjum og veltum – tilvalið til að taka upp lárétt eða hreyfa sig í kringum viðfangsefni.Ýttu stýripinnanum til vinstri eða hægri til að stjórna snúningi myndavélarinnar og skapa kraftmikið myndefni. Fullkomið til að taka upp skot þar sem er ýtt áfram og dregið til baka eða hreyfingar frá háu sjónarhorni.

Skiptu samstundis á milli fram- og afturmyndavélar

Ýttu þrisvar sinnum á tökutakkann til að snúa afturmyndavél símans að þér og auktu samstundis myndgæðin. Þessi eiginleiki gerir þér kleift að skipta hnökralaust á milli aðalviðfangsefnis og umhverfis við vlogg-upptökur, sem gerir sögurnar þínar líflegri og kraftmeiri án þess að þurfa að eiga mikið við þær.

Ekki gleyma aukahlutunum

Bættu sköpunarupplifunina með fjölbreyttu úrvali aukahluta. Hvort sem þú vilt einfaldari símafestingu eða aukin mynd- og hljóðgæði opna aukahlutirnir á nýja möguleika fyrir hvaða aðstæður sem er og bæta tökurnar þínar.

DJI OM Magnetic Quick-Release Mount [10]

Þessi festing er hönnuð fyrir iPhone-notendur [10] og býður upp á auðvelda uppsetningu og losun, fyrir núningsminni sköpun.

DJI Mic Mini Transmitter [7]

Nýi þráðlausi DJI Mic Mini hljóðneminn tryggir stöðugan flutning á hágæða hljóði, státar af lengri rafhlöðuendingu og getur tengst beint við vörur í DJI OsmoAudio™ vistkerfinu. Njóttu skýrs hljóðs með miklum smáatriðum sem lyftir efnissköpun þinni á hærra plan.

DJI OM Grip Tripod [7]

Lítill og meðfærilegur, sem getur lengt handfang rambaldsins eða virkað sem þrífótur þegar hann er opnaður. Stöm hönnun bætir grip.

DJI OM 8 Tracking Kit

Settið inniheldur DJI OM Multifunctional Module, símahleðslu- og hljóðupptökusnúru og segulfestingarklemmu fyrir síma. Þegar þessir aukahlutir eru notaðir með rambaldinu gera þeir þér kleift að nota snjalla eftirfylgnieiginleika, hljóðmóttöku [3] og lýsingareiginleika. Hvort sem þú ert að vlogga, streyma í beinni eða taka upp hversdagsleg augnablik gera þeir farsímaupptökur snjallari og auðveldari en nokkru sinni fyrr.

Samanburður á Osmo Mobile vörulínunni

EiginleikiOsmo Mobile 8Osmo Mobile 7POsmo Mobile 7Osmo Mobile SE
DJI OM Multifunctional ModuleStuddStuddStuddÁ ekki við
360° láréttur snúningurStuddurEkki studdurEkki studdurEkki studdur
Apple DockKit [1]StuttÁ ekki viðÁ ekki viðÁ ekki við
Þyngd rambalds [11]u.þ.b. 370 gu.þ.b. 368 gu.þ.b. 300 gu.þ.b. 383 g
Notkunartími [4]u.þ.b. 10 klst.u.þ.b. 10 klst.u.þ.b. 10 klst.u.þ.b. 8 klst.
Innbyggð framlengingarstöngÁ ekki viðÁ ekki við
Innbyggður þrífóturÁ ekki við
Quick Launch [12]StuttStuttStuttÁ ekki við
ActiveTrackActiveTrack 7.0 [5]ActiveTrack 7.0 [5]ActiveTrack 7.0 [5]ActiveTrack 7.0 [5]
ShotGuides
Snjöll klipping
SímahleðslaÁ ekki við

26.990 kr.

Frequently asked questions

Do you have a question? Contact us

* Data was collected in a controlled environment. Actual experience may vary.

  1. For compatibility information, refer to the smartphone compatibility list on the official DJI website.
  2. The DJI OM Multifunctional Module is required to enable tracking, audio reception (compatible with the DJI Mic 3/DJI Mic Mini/DJI Mic 2 Transmitter), and lighting features, and it only supports tracking human subjects or animals (cats and dogs).
  3. If your phone uses a Lightning port, you will need to purchase the Phone Charging/Audio Recording Cable (USB-C to Lightning) separately.
  4. Measured with the gimbal balanced in a level and stationary state without additional accessories.
  5. ActiveTrack 7.0 is only available within the DJI Mimo app.
  6. Only available on iPhone 13 Pro, iPhone 13 Pro Max, and later Pro and Pro Max models.
  7. Sold separately.
  8. The DJI Mimo app also supports gesture control, but there are some differences. For details, refer to the related tutorial video.
  9. The built-in tripod is suitable for stable, level surfaces in windless environments.
  10. Sold separately. Only supports iPhone 12 and later models; compatible with Apple’s official iPhone cases with MagSafe, allowing for easy use without removing the case.
  11. The weight of Osmo Mobile 8/Osmo Mobile 7P includes the gimbal, built-in tripod, magnetic phone clamp, and multifunctional module. The weight of Osmo Mobile 7 includes the gimbal, built-in tripod, and magnetic phone clamp. The weight of Osmo Mobile SE includes the gimbal and magnetic phone clamp. Actual weight may vary slightly. Please refer to the final delivered product for precise details.
  12. Auto pop-ups in the DJI Mimo app are only supported on iPhone and may vary based on actual conditions. For first-time use, complete device pairing, enable Quick Launch in the app, and follow the instructions to complete authorization.