DJI Neo 2 Dróni

39.990 kr.96.990 kr.

DJI Neo 2 er fyrirferðaminnsti dróni DJI [1] með hindrunarskynjun í allar áttir [2] og eiginleikum á borð við bendingastýringu [3], SelfieShot og ActiveTrack [4] sem bjóða upp á fleiri skapandi leiðir til að fljúga. Jafnvel byrjendur geta hafist handa áreynslulaust. Hugsaðu um Neo 2 sem þinn persónulega fylgidróna sem er alltaf tilbúinn til að fanga þín mest spennandi augnablik.

  • Flugtak úr og lending í lófa [5], bendingastýring [3]
  • Hraðari og mýkri eftirfylgd með ActiveTrack [4]
  • Auðvelt að fanga augnablikið með SelfieShot
  • Hindranaskynjun í allar áttir [2] og fjölbreyttir flugmöguleikar [6]
  • Hágæða 4K myndbandsupptaka [7]
  • Létt, meðfærileg hönnun með spaðahlífum

Veldu útfærslu

  • Variation Image
    DJI Neo 2 Motion Fly More Combo

    96.990 kr.

  • Variation Image
    DJI Neo 2 Fly More Combo

    65.990 kr.

  • Variation Image
    DJI Neo 2 Fly More Combo (Drone Only)

    54.990 kr.

  • Variation Image
    DJI Neo 2 (Drone Only)

    39.990 kr.

Náðu tökum á flugi með lítilli fyrirhöfn

DJI Neo 2 er með innbyggðan skjá sem auðveldar þér að velja tökustillingar. Til að fljúga af stað skaltu beina drónanum að þér og ýta á flugtakshnappinn með annarri hendi til að fljúga af stað úr lófanum þínum [5] og framkvæma sjálfvirkar myndavélarhreyfingar. Nýi „return-to-palm“ eiginleikinn [3] gerir Neo 2 kleift að staðsetja lófann þinn nákvæmlega, snúa aftur á öruggan hátt og lenda á stöðugan hátt, sem gerir flug auðveldara en nokkru sinni fyrr.

Fleiri leiðir, meira fjör

Neo 2 getur fylgt þér án vandræða, jafnvel án fjarstýringar, og tryggir að hvert spennandi augnablik sé fest á filmu. Notaðu hann með DJI RC-N3 eða RC 2 fjarstýringu fyrir auðveld flugtök. Settu á þig DJI Goggles og notaðu hreyfifjarstýringuna fyrir gagntakandi FPV-flug [8]. Fjörið tekur aldrei enda!

Bendingastýring [3]

Stilltu stefnu og fjarlægð Neo 2 með annarri eða báðum höndum [3]. Beindu lófanum að drónanum til að stýra honum upp, niður eða til hliðar, eða notaðu báða lófa til að stýra fjarlægð hans á nákvæman hátt. Engin fjarstýring er nauðsynleg til að stilla myndavélarhornið.

Raddstýring með farsíma [9][10]

Neo 2 styður raddstýringu [9][10], svo þú getur sent flugskipanir með snjallsímanum þínum eða Bluetooth-heyrnartólum [11], hvort sem þú ert úti að skokka eða á hjóli. Þegar dróninn er tengdur við símann þinn getur hann tekið upp hljóð og dregið úr hávaða á snjallan hátt sem síar sjálfkrafa út hljóð í spöðum. Þessi eiginleiki gerir þér kleift að taka upp efni á þínum eigin vegum.

Stýring með appi [10]

Stjórnaðu Neo 2 með sýndarstýripinnum í DJI Fly appinu og stingdu þér á bólakaf í fluggleðina, án þess að þurfa sérstaklega að kaupa fjarstýringu sérstaklega.

Fjarstýring [12]

Þegar Neo 2 er notaður með DJI RC-N3 fjarstýringu getur hann flutt myndbandsmerki úr allt að 10 km fjarlægð [13]. Stýrðu myndavélinni á sveigjanlegan hátt með hefðbundnum stýripinnum þegar þú þarft að taka upp fagmannlegt efni.

Hreyfifjarstýring [12]

Þegar Neo 2 er notaður með hreyfifjarstýringu og DJI Goggles styður hann hreyfistýringu með Easy ACRO, sem býður upp á yfirgripsmikla FPV-upplifun.

Snjöll myndataka, skarpt myndefni

DJI Neo 2 styður ActiveTrack [4] og SelfieShot, sem ramma myndefni sjálfkrafa inn fyrir mjúka, handfrjálsa myndatöku frá upphafi til enda. Fjölbreyttar snjallar tökustillingar skapa ný sjónarhorn og kveikja sköpunargleðina á augabragði. Með 4K myndbandsupptöku [7] skilar Neo 2 skörpu hágæðamyndefni.

Hraðari og mýkri eftirfylgd með ActiveTrack [4]

Með bættri eftirfylgd getur Neo 2 fylgt eftir hlaupum, hjólreiðum og fleiru á mjúkan og stöðugan hátt. Á opnum svæðum getur hann elt viðfangsefni á allt að 12 m/s hraða [14], sem býður upp á hraðari viðbrögð og aukinn stöðugleika.

Hraðari eftirfylgd

Með allt að 12 m/s hámarkshraða við eftirfylgd [14] fylgir Neo 2 þér mjúklega, jafnvel ef þú ert á hlaupum eða á hjóli. Hindranaskynjun í allar áttir [2] tryggir öruggari eftirfylgd framan frá og frá hliðum drónans og gerir þér kleift að fanga kvik augnablik með auðveldum hætti.

Eftirfylgd í fleiri áttir

Átta stefnu elting (áfram, afturábak, til vinstri, hægri og fjórar á ská) gerir kleift að taka mýkri og eðlilegri eltingarmyndir og eykur skapandi möguleika. Í flóknu umhverfi getur dróninn skipt yfir í eltingarstillingu afturábak, haldið myndefninu stöðugt í fókus og gert skapandi frelsi mögulegt með öryggi.

Auðvelt að fanga augnablikið með SelfieShot

Fangaðu augnablik hvort sem þú ert eitt eða í hópi, handfrjálst, með SelfieShot. SelfieShot gerir þér kleift að skipta áreynslulaust á milli þess að taka upp efri búk, allan líkamann og skot úr fjarlægð, án þrífótar eða annars aukabúnaðar. Hvort sem um er að ræða afmælisveislur, lautarferðir eða fjölskyldusamkomur setur Neo 2 sjálfkrafa hverja senu saman og stýrir myndavélinni eftir þörfum til að fanga dýrmæt augnablik með aðeins einni snertingu.

Hágæða 4K myndbandsupptaka [7]

Neo 2 er með 12 MP, 1/2″ CMOS-myndflögu með f/2.2 ljósopi og afkastamikilli myndvinnslu sem skilar skýrum myndum með litlu suði. Taktu upp 4K/60fps myndbönd, 4K/100fps hægmyndir [15] og 2,7K lóðrétt myndbönd, allt með stöðugleika 2-ása rambalds.

Áhrifamiklar myndir

Neo 2 tekur glæsilegar myndir með raunverulegum myndgæðum.

4K myndbandsupptaka [7]

Neo 2 tekur myndbönd í 4K/60fps og hægmyndir í 4K/100fps, [15] sem skilar mjúkum og skýrum hreyfingum.

Fínstilltur fyrir portrettmyndatöku

Með portrettfínstillingartækni DJI bætir Neo 2 birtu, birtuskil og húðliti í portrettmyndum og sýnir náttúrulega geislun húðar á líflegan og raunverulegan hátt.

2,7K lóðrétt upptaka

Neo 2 styður 2,7K lóðrétta myndbandsupptöku, sem er tilvalið fyrir samfélagsmiðlaefni.

Aukinn stöðugleiki

Tveggja ása rambald vinnur með rafrænni hristivörn (EIS) [16] til að ná fram mjúku og stöðugu myndefni við allar aðstæður.

Snjallar stillingar, stórkostlegar myndir

Neo 2 styður snjallar upptökustillingar eins og Dolly Zoom, QuickShots og MasterShots, sem bjóða upp á fjölbreytt sjónarhorn og einfalda þér að skapa framúrskarandi myndefni.

Tvöföld vörn fyrir öruggt flug

Hindranaskynjun í allar áttir [2] og hlífar sem verja spaðana að fullu veita tvöfalda vörn, fyrir áhyggjulaust flug. Fangaðu augnablik lífsins áreynslulaust á meðan þú nýtur frelsisins sem flugið býður upp á.

Alhliða vörn, tilvalinn fyrir byrjendur

Einnar linsu sjónkerfi sem virkar í allar áttir, LiDAR sem snýr fram og innrautt skynjunarkerfi sem snýr niður vinna saman til að skynja hindranir í rauntíma, fyrir öruggt og áreiðanlegt flug. Spaðahlífarnar veita alhliða vörn svo byrjendur geti flogið áhyggjulaust.

Hindranaskynjun í allar áttir [2]

Með nýrri hindranaskynjun sem virkar í allar áttir [2] getur Neo 2 numið og forðast hindranir framan frá eða frá hliðunum, svo jafnvel byrjendur geta stjórnað drónanum með auðveldum, stöðugum og öruggum hætti.

Fjölbreyttir flugmöguleika [6]

Neo 2 býður upp á fjölbreytta flugmöguleika [6], með bættri svif- og staðsetningargetu miðað við DJI Neo, sem auðveldar þér að fljúga í krefjandi umhverfi eins og innandyra, nálægt byggingum, yfir vatni eða á snjó.

Spaðahlífar sem verja allt

Léttur dróninn ásamt sérhönnuðum spaðahlífum gera flug og flutning öruggari og liprari, svo hver ferð verði örugg og áhyggjulaus.

Skapaðu með auðveldum og skilvirkum hætti

Innbyggt geymslupláss

49 GB innbyggt geymslupláss gerir þér kleift að taka 4K myndbönd lengi [7] svo ekkert stöðvi sköpunargleðina.

Hleðsla

Tengdu drónann beint við aflgjafa með USB-C snúru fyrir þægilega hleðslu. Tvíhliða hleðslustöð Neo 2 getur hlaðið þrjár rafhlöður samtímis [17], sem eykur bæði hleðsluhraða og skilvirkni.

QuickTransfer

Með allt að 80 MB/s skráaflutningshraða [18] verður myndefnið þitt aðgengilegt samstundis.

Heimkoma (RTH)

Hafðu engar áhyggjur af heimkomunni; þegar Neo 2 tekst á loft úr lófa eða honum er stýrt með appinu snýr hann aftur á heimapunktinn eftir að hafa lokið leið sinni. Þegar fjarstýring hreyfifjarstýring með gleraugum er notuð, styður Neo 2 heimkomu (RTH) og öryggisheimkomu (Failsafe RTH), sem virkjar hindranaforðun á meðan á heimferð stendur, sem eykur öryggi og gerir drónann byrjendavænni.

19 mínútna flugtími [19]

Með allt að 19 mínútna flugtíma [19] getur Neo 2 farið 20 ferðir [20] fram og til baka úr lófanum þínum í röð og skrásett litlu augnablik lífsins.

Vindþol

Getur svifið stöðugur í allt að 10,7 m/s vindi og veitir þannig áreiðanleika við upptökur utandyra.

Sá á kvölina sem á völina

Þökk sé ýmsum pakkamöguleikum lagast DJI Neo 2 að þínum skapandi stíl og upptökuþörfum. Hvort sem þú vilt taka einföld skot með eftirfylgd, stunda byrjendavæna loftmyndatöku eða fá fullkomlega gagntakandi flugupplifun finnur þú alltaf hinn fullkomna valkost.

DJI Neo 2 (Drone Only)DJI Neo 2 Fly More Combo (Drone Only)DJI Neo 2 Fly More ComboDJI Neo 2 Motion Fly More Combo
Inniheldur drónann, eina snjallrafhlöðu fyrir flug og spaðahlífar. Léttur og meðfærilegur, gerir þér kleift að fanga samstundis hlýjar minningar í afmælisveislum, lautarferðum og á öðrum sérstökum augnablikum.Inniheldur drónann, þrjár rafhlöður, tvíhliða hleðslustöð og spaðahlífar, sem gerir efnissköpun utandyra auðveldari og fangar hvern hápunkt með mikilli nákvæmni.Inniheldur drónann, RC-N3 fjarstýringu, þrjár rafhlöður, tvíhliða hleðslustöð, stafrænt sendiviðtæki, spaðahlífar og fleira sem býður upp á rauntíma myndbandssendingu og góða stýringu fyrir landslagsmyndatöku.Inniheldur drónann, RC Motion 3, Goggles N3 gleraugu, þrjár rafhlöður, tvíhliða hleðslustöð, stafrænt sendiviðtæki, spaðahlífar og fleira til að kynna notendur fyrir FPV-flugi og til að gera möguleg spennandi einnar töku skot.

Þínar aðstæður, þitt val

DJI Neo 2 býður upp á ýmsa pakka og fylgihluti sem henta þínum stíl og þörfum. Dróninn hentar byrjendum vel og er því tilvalinn fyrir fjölskylduferðir, útiíþróttir, ferðalög og FPV-flug innandyra. Neo 2 fangar alltaf bestu augnablikin þín, sem þinn persónulegi fylgidróni.

Hvaða myndavéladróni hentar þér?

DJI Neo 2DJI Neo
Þyngd151 g [21]135 g [22]
Hámarksmyndbandsupplausn4K/60fps, 4K/100fps [15]4K/30fps
RambaldTveggja ásaEins áss
EftirfylgdFocusTrack: ActiveTrack [4] (með nýrri hjólastillingu), Spotlight, Point of InterestFocusTrack: Spotlight, Point of Interest
Snjallir eiginleikarSelfieShot, Dolly Zoom, MasterShots, QuickShotsQuickShots
Bendingastýring [3]StuddEkki studd
Return to Palm [3]StuttEkki stutt
HindranaskynjunHindranaskynjun í allar áttir [2]Ekki studd
Hámarksflugtími19 mínútur [19]18 mínútur [23]
Hámarksdrægni myndbandssendingarWi-Fi: 500 m [24] O4: 10 km [13]Wi-Fi: 50 m [24] O4: 10 km [13]
Hámarkshraði eftirfylgdar12 m/s [14]8 m/s [14]
Innbyggt geymslupláss49 GB22 GB

39.990 kr.96.990 kr.

Algengar spurningar

Ertu með aðra spurningu? Hafðu samband

* Öll myndskeið og myndir á þessari síðu voru tekin upp með DJI Neo 2 af fagfólki í ströngu samræmi við staðbundin lög og reglugerðir og hafa verið unnin á ýmsa vegu í eftirvinnslu. Öll myndskeið og myndir eru eingöngu til viðmiðunar. Raunveruleg útkoma getur verið breytileg. Fylgið alltaf staðbundnum lögum og reglugerðum og tryggið að dróninn hafi fengið viðeigandi vottanir og leyfi fyrir loftrými áður en flogið er.

** Öll gögn voru prófuð með framleiðsluútgáfu DJI Neo 2 í stýrðu umhverfi. Raunveruleg upplifun getur verið breytileg eftir umhverfi, notkun og útgáfu fastbúnaðar.

*** Allar myndir, myndskeið og skjáefni um vöruna sjálfa á þessari síðu eru eingöngu til viðmiðunar. Raunveruleg framsetning vörunnar (þar á meðal en ekki takmarkað við útlit, lit og stærð) og skjáefni (þar á meðal en ekki takmarkað við bakgrunn, notendaviðmót og myndskreytingar) geta verið breytileg.

  1. Frá og með nóvember 2025 er DJI Neo 2 fyrirferðarminnsti dróninn í vörulínu DJI sem er með hindranaskynjun í allar áttir.
  2. Alhliða sjónkerfið aðstoðar aðeins við flugöryggi við ákveðnar aðstæður og kemur ekki í staðinn fyrir eigið mat og stýringu. Á meðan á flugi stendur skaltu alltaf fylgjast með umhverfinu og viðvörunum í DJI Fly-appinu og bera ábyrgð á og hafa stjórn á drónanum öllum stundum. Kjörflughæðarsvið sjónstaðsetningarkerfisins er 0,5 til 10 m þegar kerfið er notað án tiltækra GNSS-merkja. Afköst sjónstaðsetningar geta minnkað þegar flogið er utan þessa hæðarsviðs. Fljúgðu með varúð. Sjónkerfið virkar hugsanlega ekki rétt þegar dróninn flýgur yfir vatni, sem getur komið í veg fyrir að hann forðist vatnsyfirborð fyrir neðan sig við lendingu. Þau sem fljúga eiga að hafa stjórn á drónanum öllum stundum, taka ákvarðanir um notkun hans út frá eigin mati á umhverfinu og forðast að treysta eingöngu á sjónkerfið. Sjónkerfið getur ekki greint ákveðna hluti eða yfirborð, þar á meðal stór mannvirki með grindum og köplum (t.d. turnkrana, háspennuflutningsturna, háspennuflutningslínur og stagbrýr); yfirborð með dreifðri eða engri áferð; yfirborð með endurteknum mynstrum eða áferð (t.d. litlar flísar í sama lit); einlit yfirborð (t.d. alsvart, alhvítt, alrautt eða algrænt); yfirborð með mikilli speglun eða endurvarpi (t.d. ís og umferðarskilti); vatn eða gegnsæ yfirborð; yfirborð hluta á hreyfingu (t.d. yfir mannfjölda á hreyfingu, yfir vaggandi runnum eða grasi); hindranir á hreyfingu (t.d. gangandi fólk og ökutæki á hreyfingu); aðstæður með miklum birtubreytingum; mjög dökk yfirborð (t.d. minna en 1 lúx) eða mjög björt (t.d. meira en 100.000 lúx); efni með sterka innrauða gleypingar- eða endurskinseiginleika (t.d. speglar, gler, umferðarskilti og malbik); litlar hindranir (t.d. girðingar, trjágreinar og raflínur); og þunnar stangir eða litlir lóðréttir hlutir (t.d. rafmagnsstaurar og götuljós). Ekki hindra eða trufla skynjunarkerfið undir neinum kringumstæðum. Gakktu úr skugga um að allar linsur séu hreinar – lausar við óhreinindi, bletti og önnur aðskotaefni – og séu ekki rispaðar. Nauðsynlegt gæti verið að kvarða myndavélar sjónkerfisins eftir langan tíma í geymslu. Skilaboð munu birtast í DJI Fly-appinu og kvörðun verður framkvæmd sjálfkrafa. Ekki fljúga í rigningu eða í þoku eða þegar skyggni er minna en 100 m. Fyrir flugtak skaltu skoða glerfleti skynjunarkerfisins. Fjarlægðu allar hlífðarfilmur, límmiða og aðrar hindranir. Ef vatnsdropar, fingraför eða blettir eru til staðar skaltu hreinsa glerið með lófríum klút. Ekki nota alkóhól eða önnur lífræn leysiefni. Ef glerflöturinn er laus, brotinn, rispaður eða slitinn skaltu senda drónann til viðurkennds þjónustuaðila til viðgerðar. Sjá nánari upplýsingar í notendahandbók vörunnar.
  3. Fylgið þessum skilyrðum og varúðarráðstöfunum þegar bendingastýring er notuð: Gakktu úr skugga um að umhverfið sé öruggt þegar eiginleikinn er notaður og forðastu fólk, dýr eða ökutæki á hreyfingu. Ekki nota bendingastýringu á svæðum þar sem eru litlir eða mjóir hlutir (t.d. greinar eða raflínur), gegnsæir hlutir (t.d. gler eða vatn) eða einlit yfirborð (t.d. hvítir veggjir). Notaðu eiginleikann aðeins í umhverfi með viðeigandi birtu. Bendingastýring virkar ekki þegar umhverfisljósið er innan við 5 lúx eða yfir 100.000 lúx. Bendingastýring er aðeins studd í Spotlight- eða Follow-stillingu og er ekki studd þegar fjarstýring eða hreyfifjarstýring er notuð. Haltu drónanum í um það bil 2 til 5 m fjarlægð frá stjórnanda hans þegar eiginleikinn er notaður. Haltu fingrunum að fullu útréttum þegar eiginleikinn er notaður. Bendingastýring virkar ekki með þykkum hönskum eða vettlingum og viðfangsefnið ætti að vera að fullu sýnilegt í myndavélarrammanum án nokkurra hindrana. Þegar þú notar Return to Palm skaltu halda 2 til 5 m láréttri fjarlægð á milli drónans og lófa þíns og að hámarki 2 m lóðréttri fjarlægð. Ef aðgerðin bregst ekki við af stuttu færi skaltu stilla staðsetningu drónans með bendingastýringu eða færa þig til að forðast sjónræna blindbletti áður en þú reynir aftur. Til að láta drónann fljúga til baka með því að lyfta einum handlegg skaltu halda honum innan 10 m láréttrar fjarlægðar frá handleggnum þínum, ganga úr skugga um að handleggurinn sé að fullu útréttur þegar honum er lyft og ekki lyfta báðum handleggjum samtímis, þar sem það kemur í veg fyrir að dróninn fljúgi til baka.
  4. Mælt er með því að nota ActiveTrack-eiginleikann í opnu umhverfi. Sjá notendahandbókina fyrir aðstæður sem ekki eru studdar og aðstæður sem gætu hugsanlega truflað upptöku. Í flóknu umhverfi með mörgum hindrunum skaltu gæta varúðar þegar þú notar sjálfvirka stillingu til að tryggja flugöryggi og persónulegt öryggi.
  5. Þegar þú notar flugtak úr og lendingu í lófa skaltu fylgja eftirfarandi leiðbeiningum: notaðu eiginleikann í vindlausu umhverfi eftir fremsta megni; réttu úr lófanum lárétt og haltu honum kyrrum, forðastu að snerta spaðana með fingrunum til að koma í veg fyrir meiðsli og ekki reyna að grípa drónann á meðan hann er á flugi.
  6. Fjölbreyttir flugmöguleikar vísa til getu DJI Neo 2 til að fljúga bæði innandyra og utandyra, með verulega bættum afköstum samanborið við DJI Neo, sérstaklega við aðstæður á borð við flug yfir vatni eða snjó. Gakktu alltaf úr skugga um að farið sé að staðbundnum lögum og reglugerðum, vottunarkröfum og leyfum fyrir loftrými og vertu visst um að þú skiljir og hafir fengið öll nauðsynleg leyfi áður en þú notar drónann. Flugafköst geta minnkað ef drónanum er flogið nálægt einlitum eða gegnsæjum yfirborðum, eða yfirborðum með lítilli áferð, við slæm GNSS-móttökuskilyrði. Fljúgðu alltaf með gát í vel upplýstu umhverfi. Þegar flogið er yfir vatni skaltu halda að minnsta kosti 1 m flughæð til að tryggja öryggi. Sjá nánari upplýsingar í notendahandbók vörunnar.
  7. Hámarksupplausn í lóðréttri myndatökustillingu er 2,7K.
  8. Krefst DJI Goggles N3 eða DJI Goggles 3, ásamt DJI RC Motion 3 eða DJI FPV Remote Controller 3. Þegar DJI Neo 2 er notaður skaltu fara að staðbundnum lögum og reglugerðum og tryggja flugöryggi.
  9. Styður aðeins ensku og mandarín.
  10. Krefst þess að DJI Neo 2 sé tengdur við farsíma með Wi-Fi.
  11. Sjá niðurhalssíðu DJI Fly-appsins fyrir upplýsingar um samhæfni við farsíma og Bluetooth-samhæfnilistann fyrir upplýsingar um Bluetooth-samhæfni.
  12. Krefst DJI Neo 2 Digital Transceiver, ásamt viðeigandi fjarstýringu og gleraugum. Hægt er að fá tilgreinda hluti með því að kaupa sérstaka pakka eða með því að kaupa þá sérstaklega.
  13. 10 km drægni myndbandssendingar næst aðeins í samræmi við reglur FCC. Mælt í opnu umhverfi utandyra án truflana með fjarstýringu eða gleraugum og sýnir lengstu samskiptadrægni fyrir flug í aðra áttina, án endurkomu, samkvæmt hverjum staðli. Hámarksdrægni myndbandssendingar við raunverulegar flugaðstæður takmarkast af hámarksflugdrægni drónans. Fylgstu alltaf með heimkomuáminningum á skjánum á meðan þú flýgur.
  14. Hámarkshraði mældur í opnu, vindlausu umhverfi, þar sem dróninn tekur á loft frá 0 m hæð og er stjórnað með fjarstýringu. Gögnin eru eingöngu til viðmiðunar.
  15. 4K/100fps hægmyndarupptaka er aðeins studd þegar fjarstýring eða hreyfifjarstýring er notuð.
  16. Hristivarnarrofinn (kveikt/slökkt) er aðeins í boði þegar tækið er notað með DJI Goggles. Þegar slökkt er á hristivörn er stöðugleikavinnsla án nettengingar með Gyroflow möguleg.
  17. Fjöldi rafhlaðna sem hægt er að hlaða samtímis fer eftir afli hleðslutækisins sem notað er. Með hleðslutæki sem veitir yfir 45 W er hægt að hlaða þrjár rafhlöður á sama tíma. Með hleðslutæki sem veitir á milli 30 W og 45 W er aðeins hægt að hlaða tvær rafhlöður samtímis. Með hleðslutæki undir 30 W eru rafhlöðurnar hlaðnar í röð, frá þeirri með mestu hleðsluna til þeirrar með minnstu hleðsluna. Athugið hleðslustaðlana sem hleðslutækið styður.
  18. Mælt í rannsóknarstofuumhverfi með litlum truflunum, í löndum/á svæðum sem styðja bæði 2,4 GHz og 5,8 GHz tíðnisviðin. Niðurhalshraði getur verið breytilegur eftir raunverulegum aðstæðum.
  19. Mælt með drónanum fljúgandi áfram á 4 m/s hraða í vindlausu umhverfi 20 m yfir sjávarmáli, án DJI Neo 2 Digital Transceiver, með myndavélina stillta á 1080p/30fps, slökkt á myndbandsstillingu, frá því að hleðsla rafhlöðunnar er 100% þar til hún nær 0%. Niðurstöður geta verið breytilegar eftir umhverfi, raunverulegri notkun og útgáfu fastbúnaðar.
  20. Mælt eftir að DJI Neo 2 er virkjað, með fullhlaðinni rafhlöðu og sjálfgefnum stillingum, með notkun Circle-, Rocket- og Dronie-stillinga, og er eingöngu til viðmiðunar.
  21. Mæld þyngd er án DJI Neo 2 Digital Transceiver. Raunveruleg þyngd vörunnar getur verið breytileg vegna mismunandi efna í framleiðslulotum og ytri þátta.
  22. Raunveruleg þyngd vörunnar getur verið breytileg vegna mismunandi efna í framleiðslulotum og ytri þátta.
  23. Mælt með drónanum fljúgandi áfram á 2 m/s hraða í vindlausu umhverfi 20 m yfir sjávarmáli, með myndavélina stillta á 1080p/30fps, slökkt á myndbandsstillingu, frá því að hleðsla rafhlöðunnar er 100% þar til hún nær 0%. Niðurstöður geta verið breytilegar eftir umhverfi, raunverulegri notkun og útgáfu fastbúnaðar.
  24. Mælt í opnu umhverfi utandyra án truflana. Raunveruleg drægni myndbandssendingar getur verið breytileg eftir notkunarumhverfi og afköstum farsíma. Miðið alltaf við raunverulega upplifun.