104.990 kr. – 146.990 kr.
146.990 kr. 189.990 kr.
Ekki til á lager
Inniheldur DJI RC 2, þrjár rafhlöður, 34 mínútna hámarks flugtíma hvor, hleðsludokku, tösku og fleira.
129.990 kr. 169.990 kr.
Ekki til á lager
Inniheldur DJI RC 2 með 5,5 tommu 1080p 700-nit hábjörtum skjá til að auðvelda og skilvirka stjórn.
104.990 kr. 139.990 kr.
Inniheldur venjulegu DJI RC-N2 fjarstýringu. Notaðu með símanum þínum til þess að horfa á myndbandssendingu í beinni og stöðu flugs.
10.990 kr.
3.990 kr.
Skross Multipower 2 Pro+ hleðslutæki með einu USB-C með PowerDelivery og einu USB-A með QuickCharge 3.0.
Nánar5.990 kr.
2.990 kr.
DJI Mini 4 Pro er háþróaðasti smádróni DJI til þessa. [4] Dróninn sameinar öfluga myndatökueiginleika, hindranaskynjun í allar áttir, ActiveTrack 360° með nýrri Trace stillingu og 10 km FHD myndbandssendingu í einn dróna og gerir þér þannig kleift að gera enn fleira en áður, hvort sem þú ert fagmanneskja eða byrjandi.
Taktu á loft hvenær sem innblásturinn kemur. Mini 4 Pro vegur minna en 249 g og er hannaður til að vera þægilegur í notkun á ferðinni. [1] Vegna þyngdar sinnar þarf ekki að undirgangast þjálfun eða skráningu til að nota drónann í flestum löndum og landsvæðum.
Fangaðu meiri smáatriði á auðveldan hátt með myndavél Mini 4 Pro, með 1/1,3″ CMOS myndflögu með f/1,7 ljósopi og, 2,4 μm 4-í-1 pixlum. [5] Meiri smáatriði í ljósum og dökkum hlutum myndarinnar gera að verkum að hver rammi inniheldur meiri smáatriði án fórna.
Gefðu skotunum þínum smáatriðin sem þau eiga skilið með 4K/60fps HDR og 4K/100fps myndbandsupptöku. 10-bita D-Log M og HLG gera þér kleift að festa ótrúlega litadýrð á filmu og veita þér meiri sveigjanleika þegar kemur að því að klippa og deila myndböndunum þínum.
Varðveittu náttúruleg hughrif hvers augnabliks. 4K/60fps HDR gerir þér kleift að deila smáatriðunum í sólsetri eða sólarupprás á líflegan hátt.
Fangaðu athygli áhorfenda í hverjum ramma. Með háhraðaupptöku í 4K skerpu getur þú sýnt hreyfingar hægt á áhrifamikinn hátt.
Bætt truflanaminnkunarreiknirit í Night Shots myndbandsupptökueiginleika Mini 4 Pro dregur úr truflunum og skilar sér í skýrari og hreinni myndböndum.
Taktu upp í 10-bita D-Log M og fangaðu yfir einn milljarð lita á filmu. Náttúruleg stigbreyting lita og mikil smáatriði gera þér kleift að hafa mikla stjórn á útliti myndbandanna þinna í eftirvinnslu og klippingu, á fagstigi.
Hvar sem þú gefur efnið þitt út gengur HLG úr skugga um að náttúrulegir litir og birtustig haldist náttúruleg án breytinga eða færslu á milli sniða.
Oft eru það litlu hlutirnir sem skipta mestu máli. Varðveittu hvert smáatriði með 48 MP RAW og næstu kynslóðar SmartPhoto [6] möguleikum, sem sameina HDR myndatöku, senugreiningu og fleira sem skilar sér í myndum sem standa upp úr.
Lóðrétt upptaka Gerir lóðrétta upptöku mögulega, sérstaklega hannaða fyrir samfélagsmiðla og afspilun á snjallsímum. | Miklir hallamöguleikar Náðu fram ofurmjúkum myndavélarhreyfingum með allt að 60° halla. | Stafrænt þys Taktu myndir með allt að 2x þysi og myndbönd með 4x þysi. |
Hindranaskynjun í allar áttir gerir Mini 4 Pro að afar öruggum dróna. Með fjórum víðlinsuskynjurum og tveimur skynjurum niður á við getur Mavic 4 Pro skynjað hindranir úr öllum áttum. Advanced Pilot Assistance Systems (APAS) bætir öryggi einnig með því að gera sjálfvirka hemlun og forðun mögulega á meðan á flugi stendur.
Skildu rafhlöðuáhyggjurnar eftir heima og einbeittu þér að sköpuninni með Mini 4 Pro Intelligent Flight Battery með allt að 34 mínútna flugtíma.
Mini 4 Pro inniheldur O4 myndbandssendingarkerfi DJI. Njóttu viðbragðsfljótrar stýringar og 1080p/60fps FHD beinu myndbandsstreymi úr allt að 10 km fjarlægð. [3]
Waypoint Flight Bættu skilvirkni í upptöku með sjálfvirkum flugleiðareiginleika Waypoint Flight, sem gerir þér kleift að endurtaka flugleiðir nákvæmlega. | Cruise Control Cruise Control minnkar þreytu í löngu, stöðugu flugi og dregur úr hristingi með því að gera hreyfingar mýkri. | Advanced RTH Mini 4 Pro getur sjálfkrafa útbúið örugga flugleið aftur að heimapunktinum sínum og vikið sér undan hindrunum. Þar að auki gerir AR RTH flugleiðareiginleikinn þér kleift að stýra drónanum öruggar. |
Mini 4 Pro býður upp á þrjár einfaldar leiðir til að ná skotunum sem þú vilt: Spotlight, Point of Interest og hið byltingarkennda nýja ActiveTrack 360° með bættum eftirfylgnimöguleikum. Dragðu leiðina á teiknihjólsviðmótinu til að taka upp hnökralaus skot. Með hindranaskynjun í allar áttir verður ekkert mál að víkja drónanum undan hindrunum og ná fram mýkri og stöðugri eftirfylgni.
MasterShots Býður upp á sniðmát fyrir myndavélarhreyfingar, sérsniðin að portrett-, nærmyndum og víðmyndum, svo þú getir neglt hvert einasta skot. | QuickShots Býður upp á Dronie, Circle, Helix, Rocket, Boomerang og Asteroid stillingar fyrir glæsilegar niðurstöður. | Hyperlapse Býður upp á Free, Waypoint, Circle og Course Lock stillingar með ótakmörkuðum upptökutíma og styður samsetningu á meðan á upptöku stendur. | Panorama Styður töku 180°, víðmyndar-, lóðréttra og kúlu-yfirlitsmynda til að fanga á filmu ótrúlegt landslag. | QuickTransfer Flyttu myndir og myndbönd í snjallsímann þinn fljótlega og þægilega án þess að tengja fjarstýringuna við. Þú getur deilt sköpunarverkunum þínum tafarlaust. |
LightCut styður þráðlausa tengingu og snjalla greiningu á samsetningu og flugleiðum svo þú getir snögglega klippt og skapað áhugaverð myndbönd í einum smelli. Með því að blanda saman myndböndum frá ActiveTrack, MasterShots og QuickShots bætir appið sjálfkrafa við hljóðbrellum og sniðmátum sem skila sér í hágæðamyndböndum á stuttum tíma. Þar að auki er engin þörf á að hlaða niður myndefni á meðan á klippingu stendur, sem sparar geymslupláss snjallsímans þíns.
Klipping með einum smelli Notar gervigreindartækni til að greina tegundir efnis og þemu og velja hápunktana til að búa til ótrúleg myndbönd. Þú getur einnig auðveldlega skapað meistaraverk með sérsniðnum stillingum fyrir ActiveTrack, MasterShots og QuickShots og notið þannig bæði skilvirkrar upptöku og klippingar í einu. | Snjallar hljóðbrellur Velur sjálfkrafa réttu hljóðbrellurnar fyrir myndbandið þitt í rauntíma og glæðir sköpunarverkið þitt nýju lífi. | Óteljandi sniðmát Býður upp á breitt úrval sniðmáta fyrir loftmyndatöku, þ. á m. fyrir náttúru, borgarumhverfi, tilt-shift og fleira. Flyttu inn loftmyndefnið þitt til að skapa ótrúleg myndbönd með lítilli fyrirhöfn. |
Þessi létta og þægilega fjarstýring kemur með innbyggt DJI Fly app og gerir þér kleift að sleppa snjallsímanum á meðan á fluginu stendur. Háskerpuskjár veitir skarpa og hreina yfirsýn jafnvel í beinu sólarljósi og bætir upplifun þína af Mini 4 Pro.
Sama Two-Way Charging Hub hleðslustöðin fyrir DJI Mini 3 getur hlaðið fjarstýringu og þrjár rafhlöður í röð. Einnig er hægt að nota hana sem færanlega hleðslustöð til að hlaða fjarstýringar, snjallsíma og önnur tæki, og getur hún einnig geymt rafhlöður fyrir örugga flutninga.
Fangaðu ótrúlegt landslag á filmu með ofurbreiðu 100° sjónsviði.
Lagaðu þig að sterkri lýsingu með ND16/64/256 síum og vertu alltaf tilbúið að ná hinu fullkomna skoti.
Þekur spaðana að fullu og er auðvelt að festa og losa af. Tryggir flugöryggi á auðveldan og skilvirkan hátt.
DJI Mini 4 Pro | DJI Mini 3 Pro | DJI Mini 3 | DJI Air 3 |
---|---|---|---|
Undir 249 g | Undir 249 g | Undir 249 g | 720 g |
1/1,3″ CMOS víðlinsumyndavél Lóðrétt myndataka | 1/1,3″ CMOS víðlinsumyndavél Lóðrétt myndataka | 1/1,3″ CMOS víðlinsumyndavél Lóðrétt myndataka | 1/1,3″ CMOS víðlinsumyndavél 1/1,3″ CMOS miðlungsaðdráttarlinsumyndavél |
4K/60fps HDR Háhraðaupptaka: 4K/100fps Night Shots Video | 4K/60fps, 4K/30fps HDR Háhraðaupptaka: 1080p/120fps – | 4K/30fps HDR – – | 4K/60fps HDR Háhraðaupptaka: 4K/100fps Night Shots Video |
10-bita D-Log M, HLG | D-Cinelike | – | 10-bita D-Log M, HLG |
Hindranaskynjun í allar áttir, APAS 5.0 Advanced RTH, Waypoint Flight, Cruise Control | Hindranaskynjun fram, aftur á bak og niður, APAS 4.0 Smart RTH | Hindranaskynjun niður á við Smart RTH | Hindranaskynjun í allar áttir, APAS 5.0 Advanced RTH, Waypoint Flight, Cruise Control |
DJI O4: allt að 10 km drægni 1080p/60fps bein myndbandssending | DJI O3: allt að 8 km drægni 1080p/30fps bein myndbandssending | DJI O2: allt að 6 km drægni 720p/30fps bein myndbandssending | DJI O4: allt að 10 km drægni 1080p/60fps bein myndbandssending |
104.990 kr. – 146.990 kr.
Við látum þig vita þegar varan er komin aftur á lager
* Öll gögn koma úr prófunum með framleiðsluútgáfu DJI Mini 4 Pro í stýrðu umhverfi. Raunveruleg afköst geta farið eftir umhverfi, notkun og útgáfu fastbúnaðar.
** Öll myndbönd og myndir á þessari síðu voru tekin í ströngu samræmi við viðeigandi svæðisbundin lög og reglugerðir. Kynningarefni er aðeins til viðmiðunar. Fylgið alltaf svæðisbundnum lögum og reglugerðum og gangið úr skugga um að dróninn sé með viðeigandi vottanir áður en honum er flogið.