52.990 kr. – 114.990 kr.
114.990 kr.
Inniheldur DJI RC, tvær auka 38 mínútna Intelligent Flight rafhlöður, DJI RC, hleðsludokku, tösku, auka spaðar og fleira.
94.990 kr.
Inniheldur RC-N1, tvær auka 38 mínútna Intelligent Flight rafhlöður, hleðsludokku, tösku, auka spaða og fleira.
86.990 kr.
Inniheldur DJI RC, eina rafhlöður og fleira.
64.990 kr.
Inniheldur RC-N1, eina rafhlöðu og fleira.
52.990 kr.
Ekki til á lager
Inniheldur ekki fjarstýringu, mikið gildi ef þú átt nú þegar fjarstýringu.
7.990 kr.
Ekki til á lager
Hleður og geymir þrjár rafhlöður í röð. Getur hlaðið fjarstýringu, snjallsíma eða önnur tæki
Nánar10.990 kr.
3.990 kr.
Ekki til á lager
Skross hleðslutæki með einu USB-C með PowerDelivery. Hámarksafköst 30W
NánarDJI Mini 3 er smár, ofurléttur myndavélardróni sem er til í tuskið. Lengri rafhlöðuending, 4K HDR myndbandsupptaka sem fangar raunverulega liti og smáatriði, og lóðréttur upptökueiginleiki fyrir samfélagsmiðlaefni. Hvort sem þú ert á ströndinni, í helgargöngu eða mánaðarlöngu ferðalagi ert þú til í að fanga hvert einasta augnablik á filmu.
DJI Mini 3 er samanbrjótanlegur og vegur undir 249 g [1] og hentar því einstaklega vel í bakpokann eða vasann.
Segðu bless við hleðslukvíða og fljúgðu öruggt með hugarró. Með DJI Mini 3 fylgir Intelligent Flight Battery sem veitir allt að 38 mínútna flugtíma. Lengdu flugin í allt að 51 mínútu með Intelligent Flight Battery Plus. [2]
Taktu upp í ofurskörpu 4K HDR með raunverulegum litum, dag sem nótt. [3] Myndavélin á Mini 3 er með 1/1,3″ CMOS myndflögu með tvöföldu native ISO og HDR á flögunni.
Náðu ljósum og dökkum flötum í miklum smáatriðum með aukinni dýpt á daginn.
Haltu svo áfram að taka upp skýr og lifandi myndbönd, jafnvel þegar rökkva tekur.
f/1,7 ljósop og stærri 2,4 μm 4-í-1 pixlar taka upp skýr smáatriði og veita framúrskarandi myndgæði jafnvel í lítilli birtu. Með 4x þysi (zoom) getur þú kannað lengra og skoðað staðsetningar fyrir tökur.
Hvort sem um er að ræða hátt og tignarlegt tré eða háa byggingu getur þú sett skotið þitt saman þannig að allt sé innan rammans. Nýstárleg rambaldshönnun gerir myndavélinni kleift að halla sér með víðu sjónarhorni. Fljótlegt er að skipta yfir á True Vertical Shooting fyrir sannkölluð listaverk sem eru tilbúin fyrir samfélagsmiðlana.
Taktu ótrúleg skot á nokkrum sekúndum með QuickShots á borð við Dronie, Circle, Helix, Rocket og Boomerang. Jafnskjótt getur þú getur sent niðurstöðurnar í símann þinn til að vista eða deila, með QuickTransfer.
Vindar við strandlengjuna eða í fjallgörðum eru ekkert mál. DJI Mini 3 helst stöðugur í vindi allt að 10,7 m/s. Með DJI O2 myndbandssendingu næst allt að 6 km drægni [4] og öflug truflanavörn.
Að fljúga er auðveldara en þú heldur og DJI Mini 3 býr yfir ýmsum snjöllum eiginleikum til að hjálpa þér af stað.
Auto Takeoff eiginleikinn hjálpar þér að hefja flugleiðangurinn þinn.
Return to Home (RTH) eiginleikinn inniheldur Smart RTH, Low Battery RTH og Failsafe RTH, sem hjálpa drónanum að fara aftur að upphafsstaðsetningu sinni ef hann tapar merkinu eða hleðslan verður lág.
Dróninn sameinar GNSS, sjónræna skynjun niður á við og innrauða skynjun til að svífa á stöðugan og nákvæman hátt, svo þú getir flogið örugglega.
52.990 kr. – 114.990 kr.
Við látum þig vita þegar varan er komin aftur á lager
* Athugið alltaf og fylgið svæðisbundnum lögum og reglugerðum áður en flogið er
** Prófað með framleiðsluútgáfu DJI Mini 3 í stýrðu umhverfi. Raunveruleg virkni getur verið ólík eftir umhverfi, notkun og fastbúnaðarútgáfu.
*** Allar myndir og myndbönd á þessari síðu voru teknar í ströngu samræmi við svæðisbundin lög og reglugerðir
**** Virkja þarf DJI Mini 3 með DJI Fly appinu fyrir notkun.