DJI Mic 3 Hljóðnemi

13.990 kr.42.990 kr.

  • Léttur hljóðnemi og einfaldur í notkun, fyrirferðarlítill í geymslu [1]
  • Styður allt að 4 senda og 8 móttakara og fjögurra rása úttak [2]
  • Sjálfvirk mögnunarstýring jafnar hljóðstyrk [3]
  • Þrjú snið fyrir raddblæ [4], tveggja þrepa hljóðútilokun [5]
  • Tveggja tíðnisviða truflanavörn [6], lossless hljóðsending
  • Tveggja skráa innri 32 bita hlaupakommuupptaka
  • Innbyggður tímakóði fyrir hnökralausa klippingu
  • Lengri notkunartími og hraðhleðsla

Veldu útfærslu

  • Variation Image
    DJI Mic 3 (2 TX + 1 RX + Charging Case)

    42.990 kr.

  • Variation Image
    DJI Mic 3 (1TX + 1RX)

    27.990 kr.

  • Variation Image
    DJI Mic 3 Transmitter

    13.990 kr.

Lítill, léttur og fjölhæfur

DJI Mic 3 hljóðneminn er fyrirferðralítill, léttur og lítið áberandi. Hægt er að festa hann hvort tveggja með segulfestingu og klemmufestingu. Hægt er að losa og snúa klemmunni til að stilla halla hljóðnemans á sveigjanlegan hátt, hvort sem hann er festur til hliðar eða á hvolfi. Þannig geturðu tryggt bestu mögulegu hljóðupptöku í öllum aðstæðum.

Allt sem þú þarft, til í tuskið

Hleðsluboxið rúmar tvo senda og einn móttakara. Hver sendir passar í hylkið með vindhlífinni á og annaðhvort segli eða segulklemmu – engin þörf á að fjarlægja þau. Þegar sendarnir eru geymdir með klemmurnar fastar á er einnig pláss í lokinu fyrir seglana og læsanlegu hljóðsnúruna [1], svo allt helst skipulagt og er alltaf tilbúið til notkunar.

Framúrskarandi hljóð, snjallari upplifun

Sjálfvirk mögnunarstýring kemur jafnvægi á hljóðstyrk [3]

AutomaticDynamic
Sjálfvirka stillingin kemur í veg fyrir hljóðklippingu og er tilvalin fyrir umhverfi utandyra með miklum sveiflum í hljóðstyrk, eins og t.d. íþróttaviðburði.Kvik stilling aðlagar mögnun sjálfkrafa í samræmi við breytingar á hljóðstyrk og tryggir jafnan hljóðstyrk – tilvalið fyrir hljóðlátar aðstæður innandyra eins og í hljóðverum.

Þrjú snið fyrir raddblæ til að passa við þinn stíl [4]

RegularRichBright
Venjuleg stilling er sjálfgefin og býður upp á hreint, náttúrulegt og jafnt hljóð.Fyllt stilling sem leggur aukna áherslu á lágu tónana fyrir fyllri og kraftmeiri hljóm.Skýr stilling leggur áherslu á háu tónana og gefur röddinni þinni aukinn skýrleika og glans.

Tveggja stiga hljóðútilokun [5]

BasicStrong
Grunnstigið er tilvalið fyrir hljóðlátar aðstæður innandyra og dregur úr viftu-, loftræsti- og bergmálshljóðum en varðveitir skýrleika raddarinnar.Sterka stigið skilar framúrskarandi árangri í hávaðasömu umhverfi og dregur verulega úr umhverfishljóðum fyrir skýrari raddir.

Vindhlíf sem festa má á sendinn dregur á áhrifaríkan hátt úr vindhljóðum og öðrum óæskilegum hávaða og skilar skýru hljóði, jafnvel í vindi eða hávaðasömu umhverfi. Tilvalið fyrir beinar útsendingar, vlogg og fleira.

Áreynslulaus stýring

Stillingar á móttakaraStjórnun og fastbúnaðaruppfærslur í appi
Móttakarinn er með 1,1″ AMOLED snertiskjá og skífu sem gefur þér aðgang að rafhlöðustöðu og ýmsum stillingum.Notaðu DJI Mimo appið til að fínstilla eiginleika DJI Mic 3 og uppfæra fastbúnaðinn beint úr símanum þínum.

Öflug afköst, óteljandi möguleikar

4 sendar + 8 móttakarar – ekkert mál! [2]

Móttakari DJI Mic 3 getur tengst allt að fjórum sendum í einu, sem gerir þér kleift að taka upp fjórar hljóðrásir samtímis. Aðalmóttakarinn getur einnig samstillt hljóð við allt að sjö aðra móttakara. Hvort sem um er að ræða hópviðtal eða framleiðslu með mörgum myndavélum færðu kristaltært hljóð frá öllum viðföngum, sem gerir eftirvinnslu að leik einum.

Sveigjanlegar og fjölhæfar rásastillingar

Móttakarinn gerir þér kleift að velja á milli mónó- og stereóstillinga (tveggja rása). Sendu hljóð frá hverjum sendi stakt eða sameinaðu það á eitt hljóðspor, hvað sem hentar best við hverjar aðstæður.

Fjögurra rása úttak [2], áreynslulaus klipping

Þegar stillt er á Quadrophonic-stillingu styður DJI Mic 3 móttakarinn (ásamt völdum Sony myndavélum eða tölvuhugbúnaði) sjálfstætt úttak fjögurra hljóðrása. Þetta gerir þér kleift að aðskilja rásir og öðklast aukinn sveigjanleika við hljóðblöndun og veitir aukið skapandi frelsi við eftirvinnslu.

Tvö tíðnisvið, traust og áreiðanleg sending

DJI Mic 3 skiptir skjálfkrafa á milli 2,4 GHz og 5 GHz tíðnisviða [6], með allt að 400 metra sendingardrægni [7]. Öflugir truflanavarnareiginleikar tryggja stöðuga hljóðsendingu, jafnvel í flóknu þráðlausu umhverfi eins og á vörusýningum.

Lossless sending, óspillt hljóð

Þegar Lossless Audio-stillingin er virkjuð [8] skilar sendirinn óþjöppuðu 48kHz 24-bita hljóði beint til móttakarans. Það tryggir að hver upptaka innihaldi ótrúleg, hágæða smáatriði.

Innri upptaka

Hafðu aldrei áhyggjur af týndu hljóði! Innri upptaka verndar efnið þitt fyrir þráðlausum truflunum eða bilunum í öðrum tækjum. Með tvöfaldri innri upptöku vistar DJI Mic 3 bæði upprunalegu rásina og algrímsbætta útgáfu samtímis [9], sem straumlínulagar vinnuflæðið þitt og heldur sköpunarferlinu hnökralausu.

Innri 32-bita hlaupakommuupptaka

DJI Mic 3 styður innri 32-bita hlaupakommuupptöku og býður þannig upp á breitt hljóðsvið sem skilar ekki aðeins hágæða upptöku heldur aðlagast einnig betur flóknu hljóðumhverfi. Hann skarar fram úr í að fanga öll blæbrigði raddar, frá lágu hvísli til mikils hljóðstyrks, og veitir þannig meiri áreiðanleika í óstöðugu hávaðaumhverfi og meiri sveigjanleika við eftirvinnslu.

Innbyggður tímakóði fyrir nákvæma samstillingu

DJI Mic 3 styður hárnákvæman tímakóða [10], þar sem sendirinn fellir tímakóðagögn inn í innri upptöku og móttakarinn styður bæði inn- og úttak tímakóða. Með minna en eins ramma skekkju á 24 klukkustundum [11] geturðu samstundis samstillt myndefni úr mörgum myndavélum í eftirvinnslu, sem gerir klippingu hraðari og skilvirkari.

Áreynslulaus skráaútflutningur

Þegar tökum er lokið notarðu einfaldlega hleðsluboxið og USB-C gagnasnúruna til að tengja báða sendana við tölvuna þína eða snjallsíma [12]. Flyttu allar innri upptökuskrárnar þínar samstundis í einu lagi – klipping og deiling gæti ekki verið auðveldari. Þú getur einnig tengt sendi við DJI Mimo appið til að hlaða niður hljóðskrám, sem býður upp á sveigjanlega útflutningsmöguleika sem henta þínum þörfum.

Stanslaust stuð, áhyggjulaus sköpun

28 klst. rafhlöðuending [13]

Sendirinn endist í allt að 8 klst. [14] og móttakarinn í allt að 10 klst. [14]. Fullhlaðið hleðsluhylki veitir um 2,4 fullar hleðslur og nær þannig samtals 28 klst. notkunartíma [13]. Taktu upp löng myndbönd auðveldlega og streymdu í beinni án þess að hafa áhyggjur af rafmagnsleysi.

5 mínútna hraðhleðsla

Hladdu í aðeins 5 mínútur og fáðu allt að 2 klst. notkunartíma [15] úr sendinum og móttakaranum – tilvalið fyrir snögga orkuaukningu. Með stuðningi við 3C hraðhleðslu tekur full hleðsla aðeins um 50 mínútur [16], svo þú getur snúið þér aftur að sköpuninni innan skamms.

Snjallir orkusparnaðareiginleikar

Sjálfvirkur orkusparnaður [17]Slökkva sjálfvirktKveikja og slökkva sjálfvirkt með myndavélNotkun á meðan hleðslu stendur
Sendirinn fer sjálfkrafa í svefnstillingu þegar hann nemur ekki merki frá móttakaranum. Hann vaknar og tengist móttakaranum aftur þegar merkið greinist á ný. Þessi aðgerð gerir þér kleift að vera með sendinn á þér í lengri tíma án þess að þurfa að kveikja og slökkva oft á honum.Á skjá móttakarans, eða í DJI Mimo appinu, geturðu stillt sendinn og móttakarann þannig að þeir slökkvi sjálfkrafa á sér eftir óvirkni í ákveðinn tíma. Þegar þessi aðgerð er virkjuð á báðum tækjum slökkva þau sjálfkrafa á sér ef þau eru ekki tengd í meira en 15 mínútur, sem kemur í veg fyrir að rafhlaðan tæmist og skilur meiri orku eftir fyrir sköpunargleðina.Eftir að hafa virkjað að kveikja og slökkva sjálfvirkt með myndavél á skjá móttakarans eða í DJI Mimo appinu, mun móttakarinn, þegar hann er tengdur við myndavélina með 3,5 mm hljóðsnúru eða flassskó, sjálfkrafa kveikja á sér þegar kveikt er á myndavélinni og slökkva á sér þegar slökkt er á myndavélinni.Þegar móttakarinn er tengdur við snjallsímann þinn með snúru fær hann orku beint frá símanum. Ef þú tengir ytri aflgjafa við USB-C tengi móttakarans geturðu hlaðið bæði móttakarann og símann samtímis – svo þú getur haldið áfram að taka upp án truflana [18].

Tengstu samstundis og skapaðu án hindrana

DJI OsmoAudio™ beintengingVirkar með fjölda tækjaBeintenging við síma í gegnum Bluetooth [20]
Sendirinn styður beintengingu við Osmo 360, Osmo Action 5 Pro, Osmo Action 4 eða Osmo Pocket 3 án móttakara [19]. DJI OsmoAudio™ tengivistkerfið tryggir úrvalshljóð og einfaldar búnaðinn þinn og vinnuflæði, sem skilar sér í skilvirkara sköpunarferli.Móttakarinn býður upp á ýmis tengi til að mæta skapandi þörfum þínum: læsanlegt 3,5 mm TRS úttakstengi fyrir stöðugar, truflanalausar tengingar; 3,5 mm TRRS vöktunartengi fyrir rauntímahljóðvöktun; og USB-C tengi fyrir hleðslu og upptöku samtímis – tilvalið fyrir síma, spjaldtölvur eða tölvur. Með millistykkjunum geturðu fljótt aðlagað þig að mismunandi tækjum fyrir skilvirkara og sveigjanlegra vinnuflæði.Enginn móttakari nauðsynlegur – sendirinn tengist beint við snjallsímann þinn í gegnum Bluetooth, svo þú getur auðveldlega notað hann með uppáhalds upptöku- eða streymisöppunum þínum [21]. Í DJI Mimo appinu geturðu breytt stillingum og uppfært fastbúnað á einum stað, sem gerir uppsetningu og notkun fljótlega og áreynslulausa.

Hagnýtir aukahlutir, áreiðanlegur stuðningur

DJI Mic Series Camera Adapter [22]

Þetta millistykki tengir DJI Mic 3 móttakarann beint við MI-flassfestingu Sony myndavéla, sem gerir þér kleift að taka upp 48kHz 24-bita stafrænt hljóð og styður fjögurra rása sjálfstætt úttak.

DJI Mic 3 Multi-Color Windscreens [22]

Fimm vindhlífar í mismunandi litum, svo þú finnir alltaf eitthvað sem passar við fatnað, umhverfi o.s.frv.

DJI Mic 3 Mobile Phone Adapter (Lightning) [22]

Gerir DJI Mic 3 móttakaranum kleift að tengjast Apple-snjalltækjum með Lightning tengi fyrir hljóðupptöku.

Samanburður á DJI Mic línunni

DJI Mic 3DJI Mic MiniDJI Mic 2
Þyngd sendis16 g (með segli)10 g28 g
HljóðútilokunTveggja stiga virk hljóðútilokunTveggja stiga virk hljóðútilokunVirk hljóðútilokun
RaddblæsstillingarÞrjú sniðÁ ekki viðÁ ekki við
Sjálfvirk mögnunarstýringSjálfvirk (kemur í veg fyrir hljóðklippingu) Kvik (jafnar út hljóðstyrk)Sjálfvirk takmörkun kemur í veg fyrir hljóðklippinguÁ ekki við
TímakóðiStuddurÁ ekki viðÁ ekki við
Innri upptaka32 GB, 24-bita/32-bita hlaupakomma Tveggja skráa innri upptakaÁ ekki við8 GB, 24-bit/32-bita hlaupakomma
TengigetaFjórir sendar, átta móttakarar [2]Tveir sendar, einn móttakariTveir sendar, einn móttakari
NotkunartímiSendir: 8 klst. Móttakari: 10 klst. Hleðslubox: 28 klst.Sendir: 11,5 klst. Móttakari: 10,5 klst. Hleðslubox: 48 klst.Sendir: 6 klst. Móttakari: 6 klst. Hleðslubox: 18 klst.
Samhæfir aukahlutir [22]DJI Mic Series Camera AdapterDJI Mic Series Camera AdapterDJI Lavalier Mic DJI Mic 2 Camera Adapter

13.990 kr.42.990 kr.

Algengar spurningar

Ertu með aðra spurningu? Hafðu samband

* Öllum ofangreindum gögnum var safnað í stýrðu umhverfi. Raunveruleg upplifun getur verið breytileg. Vinsamlegast skoðið opinbera vörusíðu DJI fyrir notkunarstillingar og tillögur.

  1. Þegar aukahlutir eru geymdir í hleðsluboxinu skal forðast að stafla þeim til að koma í veg fyrir skemmdir á skjá móttakarans.
  2. Til að ná að nota 4 senda og 8 móttakara eða fjögurra rása úttak þarf að kaupa aukahluti sérstaklega. Fjögurra rása úttakseiginleikinn er aðeins studd af ákveðnum Sony myndavélagerðum (krefst DJI Mic Series Camera Adapter) og ákveðnum tölvuhugbúnaði (með USB-úttaki). Fyrir frekari upplýsingar, vinsamlegast skoðið samhæfislista á niðurhalssíðunni á opinberum vef DJI Mic 3.
  3. Sjálfvirka mögnunarstillingu (Adaptive Gain Control) er hægt að stilla í gegnum móttakarann eða DJI Mimo appið og er sjálfgefið slökkt á henni.
  4. Hægt er að velja snið fyrir raddblæ (Voice Tone Preset) í gegnum móttakarann eða DJI Mimo appið, en sjálfgefin stilling er venjuleg (Regular).
  5. Sjálfgefið er slökkt á hljóðútilokun en hægt er að virkja hana og stilla á annaðhvort sterka (Strong) eða grunnstillingu (Basic) í gegnum móttakarann, DJI Mimo appið eða tæki sem er beintengt í gegnum OsmoAudio™ vistkerfið. Þegar móttakarinn er notaður með mörgum sendum er hægt að stilla hávaðadeyfingu annaðhvort fyrir hvern sendi fyrir sig eða fyrir alla senda samtímis. Þegar Osmo 360, Osmo Action 5 Pro, Osmo Action 4 eða Osmo Pocket 3 er beintengt í gegnum OsmoAudio™ er hægt að breyta stillingunum á viðmóti vörunnar. Þegar sendirinn er beintengdur við snjallsíma er hægt að breyta stillingunum í Mimo appinu.
  6. Leyfileg notkunartíðni er mismunandi eftir löndum og svæðum. Athugaðu staðbundin lög og reglugerðir fyrir frekari upplýsingar.
  7. Mælt með DJI Mic 3 (2 TX + 1 RX + Charging Case), með slökkt á lossless hljóði, í opnu, óhindruðu umhverfi án truflana.
  8. Þegar kveikt er á lossless hljóði minnkar rafhlöðuending sendisins um u.þ.b. 2 klukkustundir við venjulegar notkunaraðstæður og hámarksdrægni minnkar um u.þ.b. 50%.
  9. Algrímsbæting felur í sér forstillingar fyrir raddblæ, lágtíðnisíu, hávaðadeyfingu og sjálfvirka mögnunarstýringu.
  10. Upplýsingar um studdar tímakóðastillingar, rammatíðni og úttakssnið tímakóða má finna á FAQ-síðunni á opinberum vef DJI Mic 3.
  11. Mælt með DJI Mic 3 (2 TX + 1 RX + Charging Case) í umhverfi án rafsegultruflana, með stöðugu afli til senda og móttakara eftir tímakóðasamstillingu, í gegnum samfellda upptöku í 24 klukkustundir.
  12. Lista yfir samhæf tæki má finna á niðurhalssíðunni á á opinberum vef DJI Mic 3.
  13. Mælt með DJI Mic 3 (2 TX + 1 RX + Charging Case) með fullhlöðnu hleðsluboxi, með slökkt á eiginleikum svo sem hljóðútilokun og innri upptöku, við hljóðupptöku úr lítilli fjarlægð, við truflanalausar aðstæður, með báða senda tengda við móttakarann og móttakarann tengdan við myndavél með 3,5 mm hljóðsnúru.
  14. Mælt með DJI Mic 3 (2 TX + 1 RX + Charging Case), með slökkt á eiginleikum svo sem hljóðútilokun og innri upptöku, við hljóðupptöku úr lítilli fjarlægð, við truflanalausar aðstæður, með báða senda tengda við móttakarann og móttakarann tengdan við myndavél með 3,5 mm hljóðsnúru.
  15. Mælt í stýrðu umhverfi með hleðslu senda og móttakara undir 25%, með hleðslutæki með 5 V úttaksspennu, með slökkt á hljóðútilokun, við hljóðupptöku úr lítilli fjarlægð, við truflanalausar aðstæður, með báða senda tengda við móttakarann og móttakarann tengdan við myndavél með 3,5 mm hljóðsnúru.
  16. Gögnum var safnað í stýrðu umhverfi og ætti aðeins að taka sem viðmiði.
  17. Eiginleikinn er aðeins virkur þegar kveikt er á tækinu. Ef virkjað er að slökkva sjálfvirkt bæði á sendi og móttakara í DJI Mimo appinu eða á skjá móttakarans slökkva bæði tækin sjálfkrafa á sér ef ekkert pörunarmerki greinist eftir 15 mínútur.
  18. Ef síminn þinn notar Lightning-tengi getur rafhlaða símans ekki knúið móttakarann án utanaðkomandi aflgjafa. Til að gera samtímis hleðslu og notkun mögulega þarf DJI Mic 3 Mobile Phone Adapter (Lightning), sem fylgir ekki með.
  19. Ekki er hægt að stilla ákveðnar aðgerðir DJI Mic 3 í gegnum tæki sem er beintengt í gegnum OsmoAudio™ vistkerfið. Frekari upplýsingar má finna á FAQ-síðunni á opinberum vef DJI Mic 3.
  20. Aðeins er hægt að beintengja einn sendi og nota sem hljóðinntak í einu.
  21. Þegar sendirinn er beintengdur við snjallsíma með Bluetooth styður hann ekki hljóðupptöku með innbyggðu myndavélarappi símans heldur eingöngu með öppum frá þriðja aðila. Lista yfir samhæf öpp má finna á niðurhalssíðunni á opinberum vef DJI Mic 3.
  22. Selt sér.