349.990 kr. – 584.990 kr.
Mavic 4 Pro er byltingarkenndur dróni með framsæknum eiginleikum sem endurskilgreina tæknina og taka DJI myndatöku og flug á næsta stig.
584.990 kr.
Ekki til á lager
Inniheldur 512GB útgáfuna af drónanum, RC Pro 2, hleðsludokku og 2 auka rafhlöður.
449.990 kr.
Inniheldur DJI RC 2 fjarstýringu, tvær auka rafhlöður og hleðsludokku.
349.990 kr.
Inniheldur DJI RC 2 með 5.5 tommu 1080p 700-nit hábirtu skjá.
Mavic 4 Pro er með þrjár háþróaðar myndavélar, þar sem hver linsa skarar fram úr á sinn hátt og tekur framúrskarandi myndir, allt frá víðum landslagsmyndum að smæstu smáatriðum með nærmyndum. Allar þarjár myndavélar eru með Dual Native ISO Fusion, sem blandar saman kostum hárra og lágra ISO-stillinga til að festa meiri smáatriði á filmu en hefðbundnar lausnir bjóða upp á. Með RAW stacking allt að 5 ramma í hárri upplausn, auk eiginleika á borð við Free Panoramas og Subject Focusing á öllum myndavélum getur þú leyst sköpunarkraftinn úr læðingi!
4/3″ CMOS Hasselblad myndavél | 1/1.3″ CMOS miðlungsaðdráttarmyndavél | 1/1.5″ CMOS aðdráttarmyndavél |
---|---|---|
Ígildi 28 mm | Ígildi 70 mm | Ígildi 168 mm |
100 MP | 48 MP | 50 MP |
f/2.0–f/11 stillanlegt ljósop | f/2.8 ljósop | f/2.8 ljósop |
6K/60fps HDR myndbönd | 4K/60fps HDR myndbönd | 4K/60fps HDR myndbönd |
Vandlega gerð 4/3″ CMOS Hasselblad myndavélin notar glænýja 100 MP myndflögu og styður margrómað Hasselblad Natural Color Solution (HNCS) sem tryggir framúrskarandi liti. Hún fangar ótrúlegar 100 MP myndir fullar af smáatriðum og skerpu og veitir fordæmislausan sveigjanleika í eftirvinnslu. Linsan hefur verið endurhönnuð til að mæta þörfum 100 MP myndflögunnar, sem skilar sér í ótrúlegri skerpu. Fjölhæft ljósop frá f/2.0 til f/11 gerir hreina upptöku í lítilli birtu mögulega.
Með 48 MP 1/1.3″ myndflögu og f/2.8 ljósopi veitir 70 mm miðlungsaðdráttarmyndavélin aukin myndgæði þökk sé nýjum myndvinnslubúnaði. 70 mm fókusfjarlægð skapar þjappað sjónarhorn sem leggur áherslu á viðfangsefnið og er kjörið fyrir kvik portrett og bílaupptökur með hreyfingum.
Með 50 MP 1/1.5″ myndflögu og stóru f/2.8 ljósopi nýtir aðdráttarmyndavélin sérstaklega fínstillt rambaldsreiknirit til að ná fram óviðjafnanlegum myndgæðum og stöðugleika í loftmyndatöku úr fjarlægð. Aukin drægni hennar minnkar dýptarskyn mikið og skapar flatara sjónarhorn sem einangrar viðfangsefni á skýran hátt. Með Subject Focusing verður ekkert mál að taka ótrúlegar nærmyndir. Einnig getur aðdráttarmyndarvélin tekið Free Panorama-myndir í miklum smáatriðum og sýnt sjóndeildarhringinn með minnsta aðdrætti og nákvæmar borgarmyndir með mesta aðdrætti.
6K/60fps HDR myndbönd | 4K/120fps hægmyndbönd | 10-bita D-Log & All-I 4:2:2 kóðun |
---|---|---|
Allar þrjár myndavélar styðja 4K/60fps HDR myndbandsupptöku. Hasselblad-aðalmyndavélin tekur myndbandsupptökuna á næsta stig með því að gera 6K/60fps HDR myndbandsupptöku mögulega, með mikið lýsingarbreytisvið, allt að ca 16 stoppum[5]. Miðlungs- og aðdráttarmyndavélarnar bjóða upp á 14 stopp og 13 stopp, í þeirri röð. | Hvort tveggja Hasselblad-aðalmyndavélin og miðlungsaðdráttarmyndavélin styðja 4K/120fps myndbandsupptöku, en aðdráttarmyndavélin tekur upp í 4K/100fps [6]. Há upplausn og mikil rammatíðni veita aukinn sveigjanleika í endurvinnslu. Þegar efni á borð við portrett, skíði og dýralíf er tekið upp er háhraðaupptakan nytsamleg til að sýna myndbönd hægt og bæta dramatískri spennu við verkin. | Allar þrjár myndavélar eru með 10-bita D-Log, D-Log M og HLG litaprófíla, sem tryggja samræmi í litbrigðum. Mavic 4 Pro 512GB í Creator Combo bætir enn fremur vinnuflæðið með 10-bita 4:2:2 myndbandsupptöku með All-I kóðun. Þessi möguleiki fangar meiri smáatriði í litum og auðveldar eftirvinnslu. |
Brjóttu skapandi takmörk með hinu byltingarkennda Infinity Gimbal. Nýstárlegt rambaldið getur snúist í heilar 360° [7] og gert áður ómöguleg sjónarhorn möguleg. Taktu upp efni með skökkum myndramma beint í myndavélinni eða hugsaðu frásagnarstílinn upp á nýtt með fljótandi hreyfingum sem storka þyngdaraflinu.
Rammaðu inn fjöll og arkitektúr á kvikan og stórbrotinn hátt og fjölgaðu möguleikunum á skapandi samsetningum út í hið óendanlega.
ActiveTrack 360° [8] skarar fram úr jafnvel í lítilli birtu eins og við ljósaskipti eða í borgarljósum [1] og veitir eftirfylgni á kvikmyndastigi með auknum stöðugleika. Þegar eftirfylgni hefst getur Mavic 4 Pro haldið viðfangsefninu í fókus jafnvel þótt neðri helmingur þess sé að hluta til á bak við runna eða ef viðkomandi stendur á brú. Einnig skynjar það ökutæki í allt að 200 m fjarlægð [9] með meðvitund um áttir og er kjörið fyrir bílatökur.
ActiveTrack 360° á Mavic 4 Pro er stórbætt hvað varðar eftirfylgni ökutækja og hefur afar fjölbreytt notagildi.
Mavic 4 Pro er með 6 afkastamikla fiskaugaskynjara sem virka í lítilli birtu, auk tveggja örgjörva, sem veita drónanum umhverfislega meðvitund í hárri upplausn. Þannig er hindranaforðun í allar áttir möguleg við allt að 18 m/s flughraða, í birtu allt niður í 0,1 lúx, svo sem í umhverfi sem er aðeins lýst með götuljósum. Hvort sem flogið er í gegnum gljúfur eða borgarumhverfi með slæmu gervihnattasambandi tryggir sjónrænt skynjunarkerfið nákvæma staðsetningu drónans. Í nánast almyrku umhverfi með birtustig undir 0,1 lúx getur dróninn notað LiDAR-skynjara að framan til að skynja hindranir í vegi fyrir sér og bremsað snögglega til að forðast árekstra.
0,1 lúxa hindranaskynjun | RTH að næturlagi | RTH án GPS |
---|---|---|
Veitir öflugt öryggi við næturmyndatöku, gerir þér kleift að skapa með sjálfstrausti og skilvirkni. | Með LiDAR-skynjara framan á sér getur Mavic 4 Pro numið hindranir á borð við háar byggingar, jafnvel þar sem birtustig er lágt, og hreyfir sig á snjallan hátt upp á við [10] til að tryggja öruggari heimkomu við flug að næturlagi. | Með sjónrænni staðsetningu og kortagerð í rauntíma leggur Mavic 4 Pro flugleiðir á minnið þegar næg birta er til staðar. Þannig tryggir dróninn örugga heimkomu [11] jafnvel þegar flogið er frá stöðum án gervihnattamerkja, á borð við svalir. |
Mavic 4 Pro skartar loftaflfræðilegri hönnun, sparnýtnu knúningskerfi og 95 Wh rafhlöðu, sem skila sér í allt að 51 mínútna flugtíma, allt að 90 km/klst. flughraða og allt að 41 km drægni[2]. Hvort sem þú ert að kanna tökustaði, æfa hreyfingar, taka timelapse-myndbönd eða víðmyndir er nægur flugtími til að geta flogið með hugarró og öryggi.
Mavic 4 Pro skartar DJI O4+ myndbandssendingarkerfinu, sem notar næstu-kynslóðar reiknirit DJI til að leysa úr læðingi fulla getu vélbúnaðarins. Kerfið styður myndbandssendingu í 10-bitum og HDR með allt að 15 km drægni [3] og minnkar líkurnar á aftengingu í umhverfi með miklum truflunum, svo sem í borgum. Þar að auki er O4+ myndbandssendingarkerfið fínstillt fyrir flug með mörgum drónum og veitir þannig öfluga vörn gegn truflunum.
DJI RC Pro 2 fjarstýringin, með 7″ ofurbjörtum snúanlegum skjá, er tilvalinn ferðafélagi Mavic 4 Pro.
Breiddu úr til að kveikja | Fjarstýring tilbúin á augabragði |
---|---|
Breiddu einfaldlega úr örmunum til að kveikja á Mavic 4 Pro. Með háþróuðu flugleiðaminni uppfærir dróninn sjálfkrafa heimapunktinn, [10] jafnvel án GPS. | DJI RC Pro 2 fjarstýringin kveikir einnig á sér þegar breitt er úr henni og gerir þér kleift að hefja sköpun tafarlaust. |
Með DJI Mavic 240W Power Adapter [4] hleður Mavic 4 Pro Parallel Charging Hub eina rafhlöðu að fullu á 51 mínútu og getur hlaðið þrjár rafhlöður á sama tíma með Mini SDC-tengi. Parallel Charging Hub eykur skilvirkni með því að forgangsraða rafhlöðunni með minnstu hleðsluna. Þegar allar þrjár rafhlöður hafa náð sömu hleðslu skiptir hleðslustöðin yfir í samhliða hleðslu og fullhleður allar þrjár rafhlöður á aðeins 90 mínútum [12]. Með því að nýta orku rafhlaðnanna virkar Parallel Charging Hub einnig sem 100 W hleðslubanki og veitir þægilega leið til að hraða síma og fartölvur með hraðhleðslu á tökustað. Þar að auki er aflsöfnunareiginleiki til staðar sem gerir þér kleift að flytja hleðsluna sem eftir er í nokkrum rafhlöðum með lítilli hleðslu yfir í rafhlöðuna með mestu hleðsluna [13].
Grunnútgáfa DJI Mavic 4 Pro kemur með 64 GB innri geymslu [14], svo þú getur byrjað að taka um leið án minniskorts. Mavic 4 Pro 512GB í Creator Combo er með 512 GB af háhraða innri geymslu [15] sem styðru upptöku á ALL-I 4:2:2 kóðunarsniði og timelapse-myndatöku með millibili allt niður í 1 sekúndu, sem tryggir að þú sért alltaf tilbúið í að taka þitt næsta meistaraverk.
Með QuickTransfer er engin þörf á að taka drónann [16] og fjarstýringuna upp úr töskunni til að flytja upptökur. Vektu Mavic 4 Pro einfaldlega með DJI Fly appinu og flyttu skrár á allt að 80 MB/s hraða[18] yfir Wi-Fi 6. Jafnvel þó þú skiptir um app heldur DJI Fly appið áfram að sækja skrárnar í bakgrunninum. Til að flytja efni yfir í tölvu geturðu einfaldlega tengt drónann við tölvu með samhæfri USB-snúru, án þess að kveikja á drónanum.
DJI Mavic 4 Pro býður upp á ýmsa pakka og aukahluti til að uppfylla allar þínar þarfir.
DJI Mavic 4 Pro Creator Combo inniheldur DJI Mavic 4 Pro 512GB með 512 GB háhraða innri geymslu, DJI RC Pro 2 fjarstýringu með 7″ ofurbjörtum mini-LED skjá, 240 W spennubreyti og USB-C í USB-C háhraða gagnakapal. Pakkinn innniheldur einnig tvær aukarafhlöður, Parallel Battery Charging Hub, hliðartösku og fleira, allt í einum pakka.
Inniheldur DJI RC 2 fjarstýringu, tvær aukarafhlöður, rafhlöðuhleðslustöð, hliðartösku og fleira sem veitir almennan stuðning við loftmyndatöku.
Inniheldur DJI RC 2 með 5,5″ 1080p 700 cd/m2 ofurbjörtum skjá.
DJI RC Pro 2 er tilvalinn skapandi félagi Mavic 4 Pro. Snjöll innbyggð samanbrjótanleg hönnun gerir óþarft að fjarlægja stýripinnana og auðveldar að kveikja og slökkva á fjarstýringunni á auðveldan hátt. Fjarstýringin er einnig með skæran 7″ ofurbjartan mini-LED skjá, innbyggðan hljóðnema og samhæfi við DJI Mic-línuna.
Inniheldur ND8/16/32/64-síur og gerir lægri lokahraða mögulegan fyrir mýkra myndefni.
Veitir allt að 51 mínútna flugtíma með Mavic 4 Pro og gerir þér kleift að snúa til baka með fullan farm, með aðeins einu flugtaki.
Notist með 240 W spennubreytinum til að fullhlaða rafhlöðu á 51 mínútu eða þrjár rafhlöður samtímis á 90 mínútum. Með því að nýta hleðslu rafhlaðnanna virkar stöðin sem 100 W hleðslubanki, sem veitir þægilega leið til að hlaða tækin þín hratt.
Hleður rafhlöðuna og fjarstýringuna hratt samtímis, eða hleður snjalltæki með USB-C tengi. Smá hönnun inniheldur innbyggða Mini SDC-hleðslusnúru sem eykur meðfærileika og samhæfi við DJI Power-línuna.
Þegar DJI Power 1000 er notað með DJI Mavic 4 Pro Parallel Charging Hub [17] getur hún veitt allt að 200 vatta hraðhleðslu fyrir Mavic 4 Pro Intelligent Battery.
DJI Mavic 4 Pro | DJI Mavic 3 Pro | DJI Air 3S | |
---|---|---|---|
Þyngd | 1063 g | 958 g | 724 g |
Myndflaga | Hasselblad-myndavél: 4/3″ CMOS, Effective Pixels: 100 MP Miðlungsaðdráttarmyndavél: 1/1.3″ CMOS, Effective Pixels: 48 MP Aðdráttarmyndavél: 1/1.5″ CMOS, Effective Pixels: 50 MP | Hasselblad-myndavél: 4/3″ CMOS, Effective Pixels: 20 MP Miðlungsaðdráttarmyndavél: 1/1.3″ CMOS, Effective Pixels: 48 MP Aðdráttarmyndavél: 1/2″ CMOS, Effective Pixels: 12 MP | Víðmyndavél: 1″ CMOS, Effective Pixels: 50 MP Miðlungsaðdráttarmyndavél: 1/1.3″ CMOS, Effective Pixels: 48 MP |
Hámarksmyndbandsupplausn | Hasselblad-myndavél: 6K/60fps HDR eða 4K/120fps Miðlungsaðdráttarmyndavél: 4K/60fps HDR eða 4K/120fps Aðdráttarmyndavél: 4K/60fps HDR eða 4K/100fps | 5.1K/50fps | 4K/60fps HDR eða 4K/120fps |
Rambald | Infinity Gimbal með 360° snúningi 70° taka upp á við studd | Raunveruleg lóðrétt upptaka ekki studd 35° taka upp á við studd | 2.7K/60fps afskorin (cropped) lóðrétt upptaka 60° taka upp á við studd |
Fókus og eftirfylgd | Fókus á viðfangsefni FocusTrack: ActiveTrack 360°, Spotlight, Point of Interest | Fókus á viðfangsefni ekki í boði FocusTrack: ActiveTrack, Spotlight, Point of Interest | Fókus á viðfangsefni FocusTrack: ActiveTrack 360°, Spotlight, Point of Interest |
Hindranaskynjun | Hindranaskynjun í allar áttir við birtuskilyrði allt niður í 0,1 lúx (upp/niður/vinstri/hægri/fram/aftur á bak) LiDAR fram á við | Hindranaskynjun í allar áttir (upp/niður/vinstri/hægri/fram/aftur á bak) | Hindranaskynjun í allar áttir, virkar að næturlagi (upp/niður/vinstri/hægri/fram/aftur á bak) LiDAR fram á við |
Hámarksflugtími | 51 mínúta | 43 mínútur | 45 mínútur |
Hámarksdrægni sendingar | 30 km (FCC) 15 km (CE/SRRC/MIC) | 15 km (FCC) 8 km (CE/SRRC/MIC) | 20 km (FCC) 10 km (CE/SRRC/MIC) |
349.990 kr. – 584.990 kr.
Við látum þig vita þegar varan er komin aftur á lager
* Öll myndbönd og myndir á þessari síðu voru tekin með DJI Mavic 4 Pro af fagfólki í ströngu samræmi við svæðisbundin lög og reglugerðir og hafa verið unnin á ýmsan hátt í eftirvinnslu. Öll myndbönd og myndir eru aðeins til viðmiðunar. Raunverulegar niðurstöður geta verið ólíkar. Fylgið alltaf svæðisbundnum lögum og reglugerðum og tryggið að dróninn hafi fengið viðeigandi vottanir og lofthelgisheimildir áður en flogið er. Allar myndir og myndbönd sem sýna dýralíf á þessari síðu voru tekin í ströngu samræmi við svæðisbundnar dýralífsverndarreglugerðir.
** Öllum gögnum á þessari síðu var safnað með framleiðsluútgáfu DJI Mavic 4 Pro í stýrðu tilraunaumhverfi. Raunveruleg reynsla getur verið ólík eftir umhverfi, notkun og útgáfu fastbúnaðar. Virkja þarf DJI Mavic 4 Pro í DJI Fly appinu fyrir notkun.
*** Mælt er með því að nota ActiveTrack 360°-eiginleikann í opnu umhverfi. Athugið notandahandbók til að sjá hvaða aðstæður eru ekki studdar eða gætu truflað upptöku. Í flóknu umhverfi með mörgum hindrunum skal sýna ítrustu varkárni þegar Auto-stillingin er notuð, til að tryggja flugöryggi og persónulegt öryggi.
**** Allar myndir, myndbönd og skjámyndir á þessari síðu eru aðeins til viðmiðunar. Raunverulegir eiginleikar vara (þar með talið en ekki tæmandi: útlit, litur og stærð) og skjáefni (þar með talið en ekki tæmandi: bakgrunnir, notendaviðmót og teikningar) geta verið ólík.