DJI Goggles N3

45.990 kr.

Notist með RC Motion 3 fyrir náttúrulega hreyfistýringu, njóttu spennu gagntakandi flugs.

Líttu nær

Yfirlit

Njóttu sjónarhorns flugstjórans

Þegar Goggles N3 eru notuð með DJI Neo/DJI Avata 2 og DJI RC Motion 3 [1] gera þau þér kleift að svífa um himininn og njóta gagntakandi flugupplifunar eins og þú sért í flugsætinu. Virkjaðu höfuðfylgd til að stýra Neo/Avata 2 með höfuð- eða handahreyfingum.

Til í tuskið, straumlínulaga sköpun

Rúmgóð og gleraugnavæn hönnun: Rúmgott innvols rúmar gleraugu með þægilegum hætti, án allra díoptrustillinga og linsa. Settu gleraugun einfaldlega á og taktu þau af jafnauðveldlega. Samtvinnuð hönnun: Höfuðband og rafhlaða jafna út þyngd gleraugnanna svo enginn þrýstingur verði á andlitið, sem tryggir þægilega notkun. Móðuhreinsun með einum smelli: Þegar móða safnast upp á yfirborði linsanna er móðuhreinsunareiginleikinn tilvalinn til að stýra rakastigi með því að hraða á innri viftunum til að hreyfa loftið, sem hentar einstaklega vel í breytilegu hitastigi og miklum raka.

1080p ofurbreiður skjár

DJI Goggles N3 er með skjá í fullri 1080p upplausn, með breiðu 54° sjónarhorni. Njóttu ótrúlegrar sýnar með áhrifamiklar loftsenur ljóslifandi fyrir framan þig.

O4 FHD myndbandssending

Háþróað DJI O4 stafrænt myndbandssendingarkerfi notar sömu loftnetshönnun og Goggles 2 og býður upp á framúrskarandi truflanavörn. Njóttu beinnar útsendingar í 1080p/60p með allt niður í 31 ms töf [2] og allt að 13 km sendingardrægni. [3] Gleraugun velja sjálfkrafa besta tíðnisviðið, 2,4 GHz eða 5.8 GHz, [4] eftir umhverfi. Þetta tryggir stöðuga sendingu svo þú getir upplifað flug í rauntíma og fengið silkimjúka sýn á það hvað þú ert að gera. Með 60 Mb/s hámarksbitahraða [5] og SyncSmooth-tækni er myndbandssending af himnum ofan niður á jörð bestuð svo þú fáir mjúka og góða yfirsýn jafnvel þegar flogið er á miklum hraða.

AR-bendill

Hægt er að nota DJI RC Motion 3 [1] sem AR-bendil áður en dróninn tekur á loft eða þegar hann svífur eftir að hafa bremsað. Þannig getur þú auðveldlega virkjað eiginleika og breytt stillingum án þess að sleppa höndunum af RC Motion 3.

2,7 klst. rafhlöðuending

Fullhlaðin DJI Goggles N3 endast í notkunartíma allt að 13 DJI Neo rafhlaðna. [6] Með öflugri 2,7 klst. rafhlöðuendingu [7] getur þú leyst úr læðingi þína skapandi ástríðu og nýtt krafta þína til hins ítrasta.

Í kassanum

DJI Goggles N3 × 1

Virkar með

DJI Avata 2

DJI Neo

45.990 kr.

Algengar spurningar

Ertu með aðra spurningu? Hafðu samband

  1. DJI Neo, DJI Avata 2 og DJI RC Motion 3 fylgja ekki.
  2. Mælt parað við DJI Avata 2 með 1080p/100fps myndbandssendingu, í opnu umhverfi utandyra án truflana. 58 ms lágmarkstöf var mæld með DJI Neo, með 1080p/60fps myndbandssendingu, í opnu umhverfi utandyra án truflana.
  3. Mælt parað við DJI Avata 2, samkvæmt stöðlum FCC, í opnu umhverfi utandyra án truflana, í samræmi við hámarksflugdrægni drónans. Við sömu aðstæður, með DJI Neo, er drægnin 10 km (FCC) og 6 km (CE/SRRC/MIC).
  4. 5,8 GHz tíðnisviðið er eins og er bannað í ákveðnum löndum og landsvæðum. Athugið alltaf og fylgið til hins ítrasta svæðisbundnum lögum og reglugerðum áður en flogið er.
  5. Mælt parað við DJI Avata 2 í opnu umhverfi utandyra án truflana. Bitahraði myndbandssendingarinnar fer eftir umhverfinu. Við sömu aðstæður er hámarksbitahraðinn 50 Mb/s þegar DJI Neo er notaður.
  6. Mælt með DJI Neo pöruðum við DJI RC Motion 3, í stöðugu flugi við jafnan hraða, á Normal-stillingu.
  7. 2,7 klst. hámarksrafhlöðuendingin var mæld við 25° C lofthitastig, skjábirtu stillta á 6, gleraugun tengd við DJI Avata 2, með myndbandssendingu stillta á 1080p/100fps, slökkt á höfuðfylgd og rafhlaða gleraugnanna fullhlaðin og ekki að veita utanáliggjandi tækjum svo sem snjallsímum orku.