

189.990 kr. – 269.990 kr.

269.990 kr.
Inniheldur DJI RC 2 með 5,5 tommu 1080p 700 nit hábjartan skjá, ND Filter Sett, tvær aukarafhlöður, hleðsludokku fyrir rafhlöður, tösku og fleira.

239.990 kr.
Inniheldur DJI RC-N3 fjarstýringu, ND Filter sett, tvær rafhlöður til viðbótar, hleðsludokku fyrir rafhlöður, tösku og fleira.

189.990 kr.
Ekki til á lager
Inniheldur hefðbundna DJI RC-N3 fjarstýringu. Notaðu með snjallsímanum þínum til að horfa á myndbandssendingu og stöðu flugs.

Tveggja myndavéla dróni sem er hannaður fyrir ferðalagamyndatöku. Með 1″ CMOS aðalmyndavél og 70 mm miðlungsaðdráttarlinsu, hvorri með allt að 14 stoppa lýsingarbreytisviði [1] tekur Air 3S landslags- og portrettmyndir auk fleiri tegunda dmynda í ótrúlegum smáatriðum. Báðar myndavélar styðja nýjan Free panorama-eiginleika sem býður upp á ýmsa möguleika í upptöku. Önnur atriði sem standa upp úr eru meðal annars hindranaskynjun að nóttu til [2] og næstu kynslóðar Smart RTH sem eykur öryggi við næturmyndatöku. DJI Air 3S er hannaður til að hámarka mátt hverrar stundar í loftinu á allan hátt.
DJI Air 3S er með tveggja myndavéla kerfi sem samanstendur af 1″ CMOS aðalmyndavél og 1/1,3″ CMOS miðlungsaðdráttarmyndavél. Aðalmyndavélin er með stærri CMOS-myndflögu og 24 mm linsu sem gerir hana tilvalda til að festa á filmu víðáttumikið landslag með meiri skerpu og breiðu sjónsviði. 70 mm miðlungsaðdráttarlinsan er framúrskarandi í portrett- og ökutækjaskotum sem getur lagt áherslu á hvaða viðfangsefni sem er.
3,2 μm pixlastærð [5]
24 mm jafngildi
50 MP
f/1,8 ljósop
2,4 μm pixlastærð [5]
70 mm jafngildi
48 MP
f/2,8 ljósop
Aðalmyndavél DJI Air 3S er með 50 MP 1″ CMOS myndflögu sem styður upptöku í 4K/60fps HDR og 4K/120fps [6] auk 10-bita D-Log M litastillingu. Þessi stóra myndflaga, sem bætt er upp með háþróaðri myndvinnslutækni og snjöllum reikniritum, viðheldur jafnvel minnstu smáatriðum við óákjósanleg birtuskilyrði svo sem við sólsetur eða að nóttu til og skilar sér í skotum sem eru einfaldlega stórbrotin.
| 4K/60fps HDR myndbandsupptaka | 4K/120fps myndbandsupptaka [6] | 10-bita D-Log M & HLG myndbandsupptaka |
|---|---|---|
| Nýjasta HDR-myndbandsupptökustillingin býður upp á allt að 14 stoppa lýsingarbreytisvið [1] sem gerir þér kleift að taka upp efni í kvikmyndagæðum þar sem mikil birtuskil eru, svo sem skot af skýjum eða öðrum þáttum við sólarupprás eða sólsetur. | Aukin upplausn og rammatíðni gefur líflegt sjónarhorn á menningar- eða íþróttaviðburði og opnar enn frekar á spennandi skapandi möguleika við eftirvinnslu. | Jafnvel í venjulegri litastillingu getur Air 3S tekið upp 10-bita myndbönd með H.265-kóðun, sem skilar sér í betri litum og meiri sveigjanleika í eftirvinnslu, með allt að 12.800 ISO. Með D-Log M og HLG litastillingunum er hámarks-ISO 3.200, sem opnar fyrir möguleikann á meiri birtu og smáatriðum í næturskotum í þéttbýli. |
Miðlungsaðdráttarlinsumyndavélin, með 48 MP 1/1,3″ CMOS-myndflögu, styður sömu myndbandsstaðla og litastillingar og aðalmyndavélin. Þetta tryggir sjónrænt samræmi gerir eftirvinnslu straumlínulagaða. 70 mm linsan býður upp á 3x optískt þys, sem gerir þér kleift að taka einstaka skot úr fjarlægð og leggja jafnframt áherslu á viðfangsefnið. Þegar Air 3S svífur á braut um viðfangsefni og tekur upp 4K myndbönd og gerir þér kleift að taka auðveldlega svipmiklar nærmyndir í miklum smáatriðum.
| 4K/60fps HDR myndbandsupptaka | 4K/120fps HDR myndbandsupptaka [6] | 10-bita D-Log M & HLG myndbandsupptaka |
|---|---|---|
| Þegar nærmyndir eru teknar af ökutækjum gegnt sólsetri býður miðlungsaðdráttarlinsumyndavélin upp á allt að 14 stopp af lýsingarbreytisviði [1] til að fanga skæra liti sólsetursins á filmu. | Háhraðaupptaka í 4K/120fps hentar vel t.d. fyrir skíðaíþróttir þar sem miðlungsaðdráttarlinsumyndavélin getur tekið upp myndbönd í hárri upplausn sem er hægt á til að sýna hæfileika iðkandans, jafnvel smæstu hreyfingar. | Miðlungsaðdráttarlinsumyndavél Air 3S styður einnig upptöku 10-bita myndbanda með venjulegri litastillingu með H.265-kóðun, sem skilar sér í betri litum og meiri sveigjanleika í eftirvinnslu. Með 10-bita D-Log M litastillingunni tekur myndavélin upp nákvæmari liti og túlkar gullfallega skær borgarljós að kvöldi til. |
Bæði aðalmyndavélin og aðdráttarmyndavél DJI Air 3S bjóða upp á Free panorama stillingu sem gerir mögulegt að skapa hnökralausar víðmyndir með því að setja saman mörg mynd með handvöldu viðfangsefni eða svæði. Víðlinsumyndavélin býður upp á breiðara sjónsvið sem bætir skilvirkni hvað varðar víðmyndatöku. Miðlungsaðdráttarlinsumyndavélin minnkar til muna myndbrenglun og nýtir margra myndir til að skapa algjört meistaraverk.
DJI Air 3S styður einnig við vinsæla eiginleika svo sem 2,7K lóðrétta upptöku, MasterShots, QuickShots, Hyperlapse og fleira og kemur saman í eina risastóra skapandi verkfærakistu í smáum umbúðum.

DJI Air 3S styður Advanced Pilot Assistance Systems (APAS). Þar að auki er hann fyrsti DJI dróninn með LiDAR sem snýr fram á við og kemur einnig með innrauðum time-of-flight (ToF) skynjurum sem snúa niður á við og sex sjónrænum skynjurum (tveim að framan, aftan og á botni) til að geta skynjað hindranir í allar áttir að nóttu til. [2] Með hjálp þessa kerfis getur dróninn sjálfkrafa ákvarðað og forðast hindranir svo sem byggingar á meðan á flugi stendur eða við heimkomu, sem tryggir öryggi við næturmyndatöku.
| RTH án GPS | RTH að nóttu til |
|---|---|
| DJI Air 3S leggur á minnið flugleiðir þegar lýsing er nægjanleg, með hjálp rauntímastaðsetningar- og kortagerðartækni. Þetta tryggir örugga heimkomu jafnvel þegar flugtak er á stað án gervihnattamerkis svo sem á svölum. [7] | Með LiDAR fram á við getur DJI Air 3S skynjað hindranir svo sem háar byggingar og stýrt sér í kringum þær upp á við, [7] jafnvel við dræm birtuskilyrði, sem tryggir öruggari heimkomu að nóttu til. |
Vision Assist eiginleiki DJI Air 3S veitir sýn niður á við, auk fram-, aftur-, vinstri-, og hægrisýnanna sem hjálpar þér að skilja umhverfi þitt betur.
DJI Air 3S býður einnig upp á Waypoint Flight og Cruise Control auk fleiri lengra komnum eiginleikum sem gera þér kleift að forstilla flugleiðir og myndavélaaðgerðir og læsa stýripinnainntaki á skjótan hátt til að sleppa af þér skapandi beislinu.
DJI Air 3S er með ActiveTrack 360° sem heldur hvaða viðfangsefni sem er innan ramma. Dróninn leggur niður flugleið og stillir innrömmun af til að styrkja skotin þín og miðjusetja viðfangsefnið hverju sinni, allt byggt á umhverfinu í kring.
| ActiveTrack 360° | Framúrskarandi eftirfylgni |
|---|---|
| ActiveTrack 360° gerir Air 3S kleift að forðast sjálfkrafa sjónarhorn með bakgrunnum með miklum truflunum. | Þegar eftirfylgni byrjar getur DJI Air 3S haldið viðfangsefni í fókus jafnvel þó neðri helmingur líkama þess sé falið af runnum eða að það standi á brú. |
DJI Air 3S býður upp á nýjan Subject Focusing eiginleika sem heldur viðfangsefninu þínu í skörpum fókus, jafnvel þegar flogið er handvirkt eða þegar viðfangsefnið færir sig frá miðjunni. Þessi eiginleiki gerir þér kleift að einblína fyllilega á skapandi hluta skotanna svo sem samsetningu og myndavélarhreyfingar.

Með allt að 45 mínútna flugtíma [3] veitir Air 3S þér nægan tíma til að skoða tökustaði, setja saman skot, negla tökurnar og endurtaka það allt saman aftur og aftur.
Með DJI O4 FHD myndbandssendingartækni veitir Air 3S 10-bita myndbandssendingu í 1080p/60fps með allt að 10 km drægni. [4] Myndmerkið er stöðugt, áreiðanlegt og líflegt með snöggu viðbragði við stýringu, og skilar sér allt saman í bættri almennri flugupplifun.
Hægt er að setja DJI Cellular Dongle 2 [8] beint í DJI Air 3S án allra aukahluta. Ef O4-merkið er truflað af einhverjum ástæðum getur þú treyst á 4G-tengingu fyrir stöðuga myndbandssendingu og stýringu á drónanum, sem bætir flugöryggi og dregur úr líkum á aftengingu.

DJI Air 3S kemur með 42 GB af innbyggðri geymslu. Þetta gerir þér kleift að hefja upptöku án tafar og sleppa við að þurfa að basla með microSD-kort.
Nú getur þú sent skrár úr Air 3S í snjallsíma jafnvel þegar slökkt er á drónanum. [9] Einnig er hægt að flytja skrár á tölvu með slökkt á drónanum – tengdu Air 3S einfaldlega með samhæfðri USB-snúru.
Hleðslustöðin styður PD hraðhleðslu og býður upp á samansöfnunareiginleika sem gerir þér kleift að flytja þá orku sem eftir er á nokkrum rafhlöðum með lítilli hleðslu yfir á þá sem hefur mesta hleðslu eftir. [10]
DJI Air 3S býður upp á ýmsa pakka og fjölbreytta aukahluti sem henta hverjum þínum þörfum.
Inniheldur venjulega DJI RC-N3 fjarstýringu. Notaðu snjallsíma til að skoða beina myndbandsútsendingu og stöðu flugs.
Inniheldur DJI RC-N3 fjarstýringuna, ND-síusett, tvær aukarafhlöður, rafhlöðuhleðslustöð, hliðartösku og fleira.
Inniheldur DJI RC 2 með 5,5″ 1080p 700 cd/m2 ofurbjörtum skjá, ND-síusett, tvær aukarafhlöður, rafhlöðuhleðslustöð, hliðartösku og fleira.
Veitir Air 3S allt að 45 mínútna flugtíma og gerir þér kleift að ná þeim skotum sem þú vilt í einu flugi.
Inniheldur ND8/32/128 síur sem gerir þér kleift að lækka lokarahraða til að taka mýkri myndskeið.
Styður raðhleðslu allt að þriggja rafhlaðna eða hraðhleðslu fyrir tæki svo sem fjarstýringar og snjallsíma. Einnig getur hleðslustöðin flutt þá hleðslu sem eftir er í nokkrum rafhlöðum yfir á þá sem hefur mesta hleðslu. [10]
Stækkar sjónsvið víðlinsumyndavélarinnar í 114° og býður upp á breiðara sjónarhorn. [8]
Gerir Air 3S kleift að tengjast 4G-neti án allra aukahluta og dregur úr líkum á að dróninn aftengist. [8]
| DJI Air 3S | DJI Air 3 | DJI Mavic 3 Pro | |
| Þyngd | 724 g | 720 g | 958 g |
| Myndflaga | Víðlinsumyndavél: 1″ CMOS, 50 MPMiðlungsaðdráttarlinsumyndavél: 1/1,3″ CMOS, 48 MP | Víðlinsumyndavél: 1/1,3″ CMOS, 48 MPMiðlungsaðdráttarlinsumyndavél: 1/1,3″ CMOS, 48 MP | Hasselblad-myndavél: 4/3 CMOS, 20 MPMiðlungsaðdráttarlinsumyndavél: 1/1,3″ CMOS, 48 MPAðdráttarlinsumyndavél: 1/2″ CMOS, 12 MP |
| Hámarksmyndbandsupplausn | 4K/60fps HDR eða 4K/120fps | 4K/60fps HDR eða 4K/120fps | 5,1K/50fps |
| Hindranaskynjun | Í allar áttir, virkar að nóttu til:(upp/niður/vinstri/hægri/fram/aftur á bak)Kemur með LiDAR sem snýr fram | Í allar áttir:upp/niður/vinstri/hægri/fram/aftur á bak | Í allar áttirl:upp/niður/vinstri/hægri/fram/aftur á bak |
| Flugtími | 45 mínútur | 46 mínútur | 43 mínútur |
| Hámarksdrægni myndbandssendinga | 20 km (FCC)10 km (CE/SRRC/MIC) | 20 km (FCC)10 km (CE/SRRC/MIC) | 15 km (FCC)8 km (CE/SRRC/MIC) |
189.990 kr. – 269.990 kr.
Við látum þig vita þegar varan er komin aftur á lager
DJI Air 3S hefur alhliða endurbætur á myndavél, skynjurum, snjallvirkni og myndbandssendingu. Helstu endurbætur eru:
*Hægt er að taka myndbönd með 14 stopp af dynamic range á auto stillingu en ekki fyrir lóðrétt eða Slow Motion myndbönd.
** Myndbandsupptaka í 4K/120fps er aðeins studd í Slow Motion.
*** Þessi eiginleiki er aðeins áhrifaríkur á yfirborðum með auðþekkjanlega áferð og við ljósaðstæður yfir 1 lux. Sjáðu opinberu DJI vefsíðuna eða notendahandbók vörunnar fyrir frekari upplýsingar.
**** Þessi eiginleiki er aðeins áhrifaríkur á yfirborðum með auðþekkjanlega áferð og við ljósaðstæður yfir 10 lux. Sjáðu opinberu DJI vefsíðuna eða notendahandbók vörunnar fyrir frekari upplýsingar.
Bæði víðlinsumyndavélin og medium tele myndavélin styðja lóðrétta upptöku (9:16) með hámarksupplausn sem er 2.7K/60fps.
Já. Til að tryggja hleðsluvirkni mælum við þó með að nota DJI 65W Portable Charger, DJI 100W USB-C Power Adapter eða önnur hleðslutæki með afkastagetu upp á 60 wött eða meira sem styðja PD staðalinn.
Ertu með aðra spurningu? Hafðu samband
* Öll myndbönd og myndir á þessari síðu voru tekin með DJI Air 3S af fagfólki í ströngu samræmi við svæðisbundin lög og reglugerðir og hafa verið unnin á ýmsan hátt í eftirvinnslu. Öll myndbönd og myndir eru aðeins til viðmiðunar. Raunverulegar niðurstöður geta verið ólíkar. Fylgið alltaf svæðisbundnum lögum og reglugerðum og gangið úr skugga um að dróninn hafi fengið viðeigandi vottanir og heimildir til flugs áður en flogið er.
** Öllum gögnum á þessari síðu var safnað með framleiðsluútgáfu DJI Air 3S í stýrðu prófunarumhverfi. Raunveruleg upplifun getur farið eftir umhverfi, notkunartilviki og fastbúnaðarútgáfu. Virkja þarf DJI Air 3S með DJI Fly appinu fyrir notkun.
*** Mælt er með að nota ActiveTrack 360° í opnu umhverfi. Skoðið notkunarleiðbeiningar áður en farið er út í óstuddar aðstæður eða aðstæður sem gætu mögulega truflað upptöku. Í flóknum umhverfum með mörgum hindrunum skal sýna aðgát þegar Auto-stilling er notuð, til að tryggja flugöryggi sem og persónulegt öryggi.
**** Allar myndir, myndbönd og efni skjámynda um vöruna sjálfa á þessari síðu eru aðeins til viðmiðunar. Raunverulegir eiginleikar vörunnar (þar með talið en ekki tæmandi listi: útlit, litur og stærð) og efni á skjá (þar með talið en ekki tæmandi: bakgrunnir, notendaviðmót og teikningar) geta verið öðruvísi.

