Skilmálar
Skilafrestur á vöru eru 14 dagar frá dagsetningu kvittunar eða staðfestingu á móttöku sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær vara var keypt eða afhent. Sé vöru sem er keypt skilað innan 14 daga frá dagsetningu kvittunar eða staðfestingu á móttöku býðst viðskiptavini full endurgreiðsla sem jafngildir kaupverði. Sumir vöruflokkar bera takmarkaðan skilarétt til dæmis drónar og myndatökulausnir.
Viðskiptavinur ber beinan kostnað af því að skila vöru og ber ábyrgð á að koma vörunni til DJI Reykjavík.
Sumar vörur bera takmarkaðan skilarétt. Það þýðir að aðeins er hægt að skila þeim vörum ónotuðum og í innsigluðum umbúðum. Þessar takmarkanir eru settar til að koma í veg fyrir misnotkun.
Vörur sem bera takmarkaðan skilrétt eru:
- Drónar
- Osmo Myndavélar og Gimbal
- Ronin (DJI R) Gimbal
- Zenmuse myndavélar
- DJI Goggles eða sambærilegar vörur
- DJI Fjarstýringar
Réttur til að falla frá kaupum:
Kaupandi hefur rétt til að falla frá kaupum í vefverslun DJI Reykjavík án þess að tilgreina nokkra ástæðu innan 14 daga. Frestur til að falla frá samningnum rennur út 14 dögum eftir að gengið var frá samningi um kaup eða þann dag sem kaupandi hefur fengið vöruna í sína vörslu. Til þess að nýta réttinn til að falla frá kaupum þarf kaupandi að tilkynna DJI Reykjavík ákvörðun sína um að falla frá kaupum með ótvíræðum hætti t.d
- Með tölvupósti á [email protected]
- Með bréfi sendu í pósti á: Reykjavík Drones Ehf, Lækjargötu 2A, 101 Reykjavík
Einnig má nota meðfylgjandi uppsagnareyðublað, en það er ekki skylda.
Áhrif þess að falla frá samningi:
Ef kaupandi fellur frá samningi um kaup í vefverslun DJI Reykjavík munum við endurgreiða kaupanda allar greiðslur sem við höfum fengið frá honum, þ.m.t. afhendingarkostnað ef við á (að undanskildum viðbótarkostnaði vegna þess að valinn afhendingarmáti er annar en ódýrasti staðlaði afhendingarmátinn sem við bjóðum). Kaupandi ber kostnað af því að skila vöru. Við munum endurgreiða með því að nota sama greiðslumiðil og kaupandi notaði í upphaflegu viðskiptunum, nema kaupandi hafi samþykkt annað sérstaklega.
Viðskiptavinur ber ábyrgð á þeirri rýrnun á verðgildi vörunnar sem stafar að meðferð hennar, sem ekki telst nauðsynleg til að staðfesta eiginleika og virkni. Enn fremur þurfa allir fylgihlutir og handbækur að fylgja með vöru til að tryggja fulla endurgreiðslu.
Almennt er endurgreitt með sama greiðslumiðil og notaður var við upphafleg viðskipti. Einnig er í boði að fá endurgreitt með millifærslu ef ekki er hægt að endurgreiða með þeim greiðslumiðil sem notaður var við upphafleg viðskipti.
Reykjavík Drones Ehf ábyrgist framleiðslugalla á seldum vörum í 2 ár frá afhendingardegi í samræmi við reglur neytendakaupalaga nr. 48/2003. Ábyrgðin nær ekki til eðlilegs slits á búnaði eða notkunar á rekstravöru.
Kvörtunarfrestir taka til þess að kaupendur geta kvartað innan lögbundinni kvörtunartíma ef sannast að vara hafi verið haldin galla. Kaupendur geta ekki kvartað eða gert kröfu um viðgerðir ef um eðlilegt slit á vöru er að ræða eða ef vara bilar vegna slæmrar eða rangrar meðferðar sem verður á söluhlut í meðförum viðskiptamanna innan kvörtunarfresta.
Þá ber kaupendum að kynna sér vel meðferð hins selda og fara að öllu leyti eftir leiðbeiningum sem framleiðendur eða seljandi upplýsa um.
Sannanlegir gallar sem talið er að hafi verið til staðar við kaupin og koma fram síðar og innan kvörtunarfresta er það sem seljanda ber eingöngu að bæta. Komi upp grunur um galla ber kaupendum að tilkynna um slíkt án ástæðulauss dráttar.
Tilkynningar um galla skal senda á [email protected]. DJI Reykjavík áskilur sér þann rétt að sannreyna að galli eða bilun heyri undir ábyrgðarskilmála, þó innan eðlilegra tímamarka.
Sölureikningur telst ábyrgðarskírteini og skal framvísa honum til staðfestingar á ábyrgð eða sýna fram á það að varan hefur verið keypt hjá Reykjavík Drones Ehf. með einhverjum hætti. Ábyrgð gildir frá kaupdegi.
Ábyrgð fellur niður ef:
- Leiðbeiningum framleiðanda búnaðar um hirðu, notkun, álag, íhluti eða viðhald er ekki fylgt.
- Ef rekja má bilun til illrar eða rangrar meðferðar
- Notkun er ekki í samræmi við skilgreiningar á viðurkenndu umhverfi fyrir vöruna.
- Óviðkomandi aðili hefur opnað eða átt við búnað, breytt honum eða bætt við hann á einhvern hátt.
- Tækið hefur verið tengt við ranga spennu eða straumtegund.
- Verksmiðjunúmer og eða innsigli hefur verið fjarlægt eða rofið.
Við viljum leggja áherslu á mikilvægi þess að kynna sér sem best notkun búnaðarins í leiðarvísum eða á vefsíðu framleiðanda. Séu einhver atriði óljós eftir að hafa kynnt sér búnaðinn í handbókum framleiðanda, vinsamlegast hafið samband við okkur í síma 519-4747 eða með því að senda tölvupóst á info(hjá)djireykjavik.is
Reykjavik Drones ehf. kt. 460217-2100 er rekstraraðili djireykjavik.is og DJI Reykjavik.
Við áskiljum okkur fullan rétt til leiðréttinga á villum í verði, texta og myndum, enda er allt efni vefsins birt með fyrirvara um villur.