Hvernig hjálpar það?
Bright Day Filter Kit frá Freewell virkar með Mavic Mini, Mini 2 og Mini SE og er hentugt fyrir áhuga- sem og atvinnufólk sem vill taka hágæða myndefni úr lofti.
Settið inniheldur fjórar hybrid (ND/PL) síur sem bæta myndgæði efnis sem tekið er í mikilli dagsbirtu.
ND (Neutral Density) hlutinn hægir á lokahraða myndavélarinnar, minnkar þannig ljósmagnið sem kemur að myndflögunni og gerir þér þannig kleift að fá „blörraðar“ hreyfingar.
Á hinn bóginn sér PL (Polarizing Lens) hlutinn um að eyða glampa af náttúrulega speglandi yfirborðum þegar tekið er upp úti.
ND8/PL sía
ND8/PL hybrid sían minnkar ljósmagnið inn í myndavélina um 3 f-stopp. Það hjálpar til við að taka skarpari og skýrari myndir í mikilli dagsbirtu og sól, utandyra. Einnig kemur það í veg fyrir óæskilegan glampa sem hefur neikvæð áhrif á myndgæði.
ND16/PL sía
ND16/PL hybrid sían minnkar ljósmagnið inn í myndavélina um 4 f-stopp. Það hjálpar til við að halda litum í jafnvægi í mikilli birtu, sérstaklega síðdegis og snemma morguns. Einnig veitir sían vörn gegn óæskilegri speglun í gluggum eða vatni.
ND32/PL sía
ND32/PL sían minnkar ljósmagnið inn í myndavélina um 5 f-stopp. Það hjálpar til við að taka skarpar og litríkar myndir í björtustu dagsbirtu. Einnig hjálpar sían til við að ná fram „blörruðum“ hreyfingum eins og sést í kvikmyndum, auk þess að verja myndirnar þínar gegn óæskilegum glampa af náttúrulegum yfirborðum sem endurkasta ljósi.
ND64/PL sía
ND64/PL sían hægir á lokahraða myndavélarinnar eins og hægt er, og er frábær leið til að ná fram „blörruðum“ hreyfingum. Einnig kemur sían í veg fyrir óæskilega speglun í gluggum, snjó, vatni og fleiru sem getur haft neikvæð áhrif á myndgæði.