Við reynum alltaf að senda vörur sem fyrst en stundum, sérstaklega um Black Friday, Jól eða á öðrum háannatímum, gæti verið aðeins meira álag hjá flutningsaðilum okkar. Þetta getur tafið komu sendingarinnar. Takk fyrir að sýna þolinmæði!
Sendingarkostnaður er rukkaður samkvæmt verðskrá Póstsins og er hann reiknaður út eftir póstnúmeri.
Já þú getur valið „Sótt í verslun“ í pöntunarferli og komið og sótt vöruna um leið og þú færð tölvupóst frá okkur um að hún sé tilbúin til afhendingar. Ef þú valdir að fá pöntunina þína senda með póstinum en vilt frekar sækja er ekkert mál að gera það en endilega hringdu á undan til þess að kanna hvort við séum nú þegar búnir að senda hana afstað.
Pantanir eru allar afgreiddar úr verslun okkar að Lækjargötu 2A, 101 Reykjavík.
Já það er hægt að rekja sendinguna! Um leið og pósturinn hefur móttekið sendinguna uppí póstmiðstöð ættir þú að fá tölvupóst með sendingarnúmeri og hlekk þar sem hægt er að rekja sendinguna.
Pantanir eru keyrðar heim til einstaklinga af Póstinum. Útkeyrsla Póstsins á höfuðborgarsvæðinu fer fram á milli 17-22 á virkum dögum.
Hægt er að hafa samband við Póstinn á kvöldin vegna heimsendinga á höfuðborgarsvæðinu í síma 580 1245, t.d. ef þú verður ekki heima á uppgefnum afhendingartíma.

