DJI ROMO · Samanburður

ROMO P, A og S

Öll þrjú vélmennin þrífa eins — sami sogkraftur, sama rafhlaða og sömu snjöllu eiginleikar. Munurinn liggur í útliti og hvað móðurstöðin getur.

Grunngerð

ROMO S

Hvítt vélmenni · hvít stöð
  • 25.000 Pa sogkraftur
  • Sjálfvirk ryksöfnun og mopþvottur
  • Sjálfhreinsun með heitu vatni
  • Án gólflyktareyðis
  • Án UV-ljóss í rykpoka
Millgerð

ROMO A

Gegnsætt vélmenni · hvít stöð
  • 25.000 Pa sogkraftur
  • Sjálfvirk ryksöfnun og mopþvottur
  • Sjálfhreinsun með heitu vatni
  • Án gólflyktareyðis
  • Án UV-ljóss í rykpoka

Lykilmunur á gerðunum

EiginleikiROMO SROMO AROMO P
Útlit vélmennisHvíttGegnsættGegnsætt
Útlit móðurstöðvarHvítHvítGegnsæ
Gólflyktareyðir✓ Já
Tvær hreinsilausnir samtímis✓ Já
UV-ljós í rykpoka (sótthreinsun)✓ Já
Gerð vélmennisCR8FCR8ECR8E
Gerð móðurstöðvarCS8FCS8FCS8E

Stutt: P er flaggskipið með gegnsæju útliti, gólflyktareyði og UV-sótthreinsun. A og S hafa sömu virkni — munurinn er aðeins útlit vélmennisins (A er gegnsætt, S er hvítt).

Sameiginlegir eiginleikar (sömu á öllum gerðum)

Vélmennið
Sogkraftur25.000 Pa
NotkunartímiAllt að 3 klst. (hljóðlát stilling)
Hleðslutími2,5 klst. (0–100%)
Rafhlaða5.000 mAh / 72 Wh
Rykbox í vélmenni260 ml
Mál vélmennis351 × 351 × 98 mm
Þyngd vélmennis4,4 kg
Móðurstöðin
Vatnstankur (hreint vatn)4 L
Vatnstankur (óhreint vatn)3,2 L
Rykpoki2,4 L
Sjálfhreinsun moppu með heitu vatni✓ Já
Moppuþurrkun (kemur í veg fyrir lykt og myglu)✓ Já
Mál móðurstöðvar453 × 425 × 440 mm
Þyngd móðurstöðvar10 kg
Snjallvirkni og umhverfi
HindrunarvörnGreinir kapla (2 mm+), hluti (15 mm+) og gæludýraúrgang
Gæludýrastilling (Pet Mode)✓ Já
Fjarstýrð myndavél-/raddsamtal✓ Já
Þráðlaust net2,4 GHz og 5 GHz Wi-Fi
AppDJI Home
Notkunarhiti0–40 °C

Allar tölur eru úr opinberum tækniforskriftum DJI. Raunveruleg afköst geta verið breytileg eftir umhverfi, notkun og hugbúnaðarútgáfu.

Algengar spurningar

Það sem viðskiptavinir spyrja oftast um ROMO. Smelltu á spurningu til að sjá svarið.

Hvaða app þarf ég til að nota ROMO?
ROMO virkar með DJI Home appinu. Sæktu nýjustu útgáfuna af niðurhalssíðu ROMO. Þú getur skráð þig inn með sama DJI-aðgangi og fyrir aðrar DJI-vörur.
Hvaða þráðlaust net styður ROMO?
ROMO styður bæði 2,4 GHz og 5 GHz Wi-Fi net. Til að ná bestu afköstum skaltu halda vélmenninu innan seilingar frá sterku og stöðugu merki.
Hvaða hreinsistillingar styður ROMO?
Fjórar stillingar: Ryksuga og moppa, Ryksuga, Moppa og Ryksuga svo moppa. Þú getur líka búið til eigin hreinsiáætlanir í DJI Home appinu.
Getur ROMO þrifið brúnir og horn?
Já. ROMO notar marga innbyggða skynjara til að greina veggi og önnur svæði sem erfitt er að ná til. Við þrifin teygir hann út hægri hliðarburstann og moppuna til að sópa meðfram veggjum og inn í horn og fjarlægir þannig ryk og óhreinindi.
Hversu stórt svæði þrífur ROMO á einni hleðslu?
Í ryksugustillingu með hljóðlátum sogkrafti gefur full hleðsla um 3 klst. keyrslu og þrífur u.þ.b. 178 m², með um 12% rafhlöðu eftir. Með fullum vatnstanki (Hreint vatn) getur hún moppað um 200 m².
Hve lengi er ROMO að fullhlaðast?
ROMO er c.a 2,5 klst. að hlaðast úr 0% í 100%. Hún styður líka hraðhleðslu — um 30 mínútur gefa nóg fyrir u.þ.b. 36 mínútna þrif í ryksugu- og moppustillingu.
Hver er líftími rafhlöðunnar?
Við venjulega notkun er líftími rafhlöðunnar um 2 ár eða 500 hleðslulotur. Ef vélmennið er ekki í notkun lengi mælum við með að slökkva á stöðinni og geyma vélmennið með um 30% hleðslu.
Er ROMO vatnsheldur?
Nei. ROMO er ekki vatnsheldur. Haltu vélmenninu og hleðslustöðinni á þurrum stað og forðastu snertingu við vökva til að koma í veg fyrir skemmdir.
Hvaða hindranir getur ROMO greint og forðast?
ROMO greinir og forðast algengar hindranir á heimilinu: kapla frá 2 mm þvermáli, hluti sem eru 15 mm eða hærri, og gæludýraúrgang. Það metur sjálft hvort það fer yfir eða framhjá hindrun eftir stærð hennar.
Hefur ROMO gæludýrastillingu?
Já. Þú getur merkt gæludýrasvæði á kortinu. Þegar ROMO þrífur þau svæði eykur það sogkraftinn fyrir dýpri hreinsun.
Hvað gerir móðurstöðin?
Stöðin sér um: sjálfvirka ryksöfnun, moppuþvott, moppuþurrkun, sjálfvirka skömmtun hreinsilausnar og sjálfhreinsun stöðvarinnar. Á ROMO P bætast við ein hreinsilausn og er því hægt að nota tvær samtímis og UV-ljós í rykpoka.
Hefur ROMO einhverja sérstaka hreinsieiginleika?
ROMO styður notkun hreinsilausnar og gólfeyðis (aðeins fáanlegt með ROMO P) við skúringar. Þetta bætir árangur á olíublettum og svæðum þar sem gæludýr eru og hjálpar til við að mæta ýmsum þrifaþörfum heimilisins.

Notaðu opinberu ROMO-hreinsilausnina til að tryggja sem bestan árangur og koma í veg fyrir tæringu.